Spennan eykst í deildakeppnunum
Vikan fram undan býður upp á fjölda kappleikja, heima og að heiman. Fótbolti, handbolti og körfubolti á heimavöllum, íshokkí, fótbolti og handbolti á útivöllum. Spennan eykst í deildakeppnum vetrarins þar sem keppt er um deildarmestaratitla og röðun í sæti fyrir úrslitakeppnir. Lengjubikarinn í fótbolta er inngangur að aðalkeppnistímabilinu og minnir á að stutt er þar til Íslandsmótin hefjast.
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR - fótbolti
Karlalið Þórs í knattspyrnu tekur á móti liði Völsungs frá Húsavík í Boganum á miðvikudag í A-deild Lengjubikars karla. Þetta er þriðji leikur Þórs í riðli 2, en liðið er í 2. sæti riðilsins með fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjunum.
- A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu, riðill 2
Boginn kl. 18:30
Þór - Völsungur
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR - handbolti
KA/Þór tryggði sér endanlega sæti í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta með sigri á Selfyssingum í 17. umferðinni. Liðið er nú í 6. sæti deildarinnar með 15 stig og getur með góðum endaspretti klifrað eitthvað upp töfluna því næstu lið fyrir ofan eru með 17, 18 og 19 stig. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni áður en úrslitakeppnin hefst.
KA/Þór tekur á móti liði Hauka á fimmtudagskvöld, en Haukar eru í 3. sæti deildarinnar með 19 stig, fjórum stigum meira en KA/Þór.
- Olísdeild kvenna í handbolta
KA-heimilið kl. 19
KA/Þór - Haukar
Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og höfðu Haukar sigur í bæði skiptin, 27-23 á Akureyri í október og 35-20 í Hafnarfirði í desember.
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR - körfubolti, íshokkí
Karlalið Þórs í körfubolta hefur átt fremur erfiðan vetur og situr í þriðja neðsta sæti 1. deildarinnar með aðeins þrjá sigra í fyrstu 17 leikjum sínum. Fimm umferðir eru eftir af deildinni og eiga Þórsarar eftir að mæta nokkrum liðum úr neðri hlutanum, meðal annarra báðum liðunum sem eru fyrir neðan þá, Hamri og Fylki.
- 1. deild karla í körfubolta
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
Þór - Skallagrímur
Skallagrímur vann 12 stiga sigur, 100-88, í fyrri leik liðanna sem fram fór í Borgarnesi í nóvember. Borgnesingar eru í 6. sæti deildarinnar.
- - -
Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Toppdeildinni með sigri á SR um liðna helgi, en enn eru þó eftir nokkrir leikir í deildinni. Þessi lið mætast aftur syðra á föstudagskvöld. Leikurinn er sá fyrsti í Ofurhelgi hjá íshokkíkonunum þar sem öll þrjú liðin mætast sömu helgina. Þetta er tilraun sem Íshokkísambandið fór af stað með á þessu tímabili. Þrjár ofurhelgar eru spilaðar hjá körlunum, en ein hjá konunum.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
SR - SA
SA hefur unnið allar viðureignir þessara liða það sem af er yfirstandandi tímabili, en tvær þeirra þó eftir framlengingu og vítakeppni í Laugardalnum. SA vann SR 5-2 á útivelli um liðna helgi og var það í fyrsta skipti sem SR skorar fleiri en eitt mark í viðureignum liðanna í vetur.
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR - fótbolti, handbolti, íshokkí, körfubolti
Karlalið KA í knattspyrnu sækir Njarðvíkinga heim í fjórða leik sínum í riðli 3 í A-deild Lengjubikars karla á laugardag. KA tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum, en vann þann þriðja og er því með þrjú stig þegar liðið á tvo leiki eftir í riðlinum.
- A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu, riðill 3
Nettóhöllin í Keflavík, gervigras, kl. 15
Njarðvík - KA
- - -
Þórsarar náðu ekki færa sig upp töfluna þegar þeir mættu HK á útivelli í 18. umferð Olísdeildar karla, liði sem var stigi fyrir ofan Þór, og sitja áfram í 11. og næstneðsta sætinu með níu stig. Á laugardag eiga þeir annan mikilvægan útileik gegn liði sem er á svipuðum slíðum, sækja Selfyssinga heim. Selfoss er í 9. sæti deildarinnar með 11 stig, en Stjarnan er þarna á milli með tíu stig. Einn til tveir sigrar á lokakaflanum geta því skipt sköpum um endanlega röð liðanna, en nú eru fjórar umferðir eftir af deildinni.
- Olísdeild karla í handbolta
Set-höllin á Selfossi kl. 16
Selfoss - Þór
Fyrri viðureign þessara liða endaði með 31-28 sigri Þórsara og er það einn af þremur sigrum liðsins í vetur.
- - -
Annar leikur kvennaliðs SA í íshokkí um helgina verður í Egilshöllinni á laugardag þegar þær sækja lið Fjölnis heim í Toppdeildinni. SA hefur unnið alla leiki sína gegn Fjölni í vetur, flesta með nokkrum yfirburðum, en einn þó í framlengingu.
- Toppdeild kvenna í íshokkí, Ofurhelgi
Egilshöll kl. 16:45
Fjölnir - SA
- - -
Þór/KA leikur fyrri heimaleik sinn í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu á laugardag þegar sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur, nýliðar í Bestu deildinni, mætir í Bogann. Þór/KA hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum.
- A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu, riðill 1
Boginn kl. 17
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík
Segja má að um sögulega viðureign sé að ræða því þetta er í fyrsta skipti sem þessi lið mætast þar sem Grindavík og Njarðvík hafa aðeins verið í samstarfi í eitt tímabil.
- - -
Kvennalið Þórs í körfubolta missti af toppsæti deildarinnar í þarsíðustu umferð þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Aþenu. Þrátt fyrir annað tapið í röð þegar liðið sótti Fjölni heim á sunnudag er Þór þó enn í 2. sætinu, en Fjölnir er í 3. sætinu með aðeins einum sigri minna. Þór á þó betri árangur í innbyrðis viðureignum við Fjölni. Næsti leikur Þórsliðsins verður á laugardag og miðað við úrslit í fyrri viðureigninni við ÍR verður að teljast ólíklegt að þriðji ósigurinn í röð verði að veruleika.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18
Þór - ÍR
Þór vann fyrri leik liðanna sem fram fór í Breiðholtinu í nóvember með 57 stiga mun, 122-65.
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR - handbolti
Baráttan um röð liðanna í Olísdeild karla er í algleymingi á lokakafla deildarinnar, núna þegar fjórar umferðir eru eftir áður en kemur að úrslitakeppni. KA situr í 6. sæti deildarinnar með 22 stig, en næstu tvö lið fyrir ofan eru aðeins með stigi meira og aðeins þrjú stig eru upp í 3. sætið. Stigin sem eftir eru í pottinum eru því mikilvæg og staðan getur breyst fljótt með hverjum sigrinum.
KA tapaði á útivelli fyrir Val í 18. umferðinni, 31-36, en Valur er á toppi deildarinnar með 28 stig. Á sunnudag er komið að heimaleik hjá KA gegn ÍBV, en Eyjamenn eru í 4. sætinu með 23 stig.
- Olísdeild karla í handbolta
KA-heimilið kl. 16
KA - ÍBV
Eyjamenn unnu fyrri viðureign þessara liða í Eyjum, 36-34.
- - -
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net - sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.
Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála
Pípuhattur borgríkisins
Kæra Akureyri, hvað viltu verða þegar þú verður stór?
Ingibjörg er ljósið í myrkrinu