Fara í efni
Umræðan

Golf: Bryndís Eva ofarlega í Portúgal

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr GA var sigursæl á golfmótum á síðasta ári og þetta ár byrjar vel hjá henni. Mynd: gagolf.is.

Golfklúbbur Akureyrar (GA) á fjóra fulltrúa í íslenska landsliðshópnum í golfi sem er þessa dagana við æfingar og keppni í Portúgal. Á mánudag lauk Global Junior móti þar sem Bryndís Eva Ágústsdóttir náði bestum árangri íslensku kylfinganna en hún endaði í 3.-4. sæti stúlkna 18 ára og yngri.

Spilaðir voru þrír hringir og var Bryndís Eva í efsta sætinu eftir tvo hringi. Tvær danskar stúlkur skutust hins vegar framúr á lokahringnum og enduðu á samtals 9 höggum yfir pari. Bryndís Eva og þriðja danska stúlkan komu næstar á samtals 13 höggum yfir pari.

Bryndís Eva lék hringina þrjá á samtals 232 höggum (77-76-79) og Lilja Maren Jónsdóttir úr GA náði 8. sætinu á samtals 238 höggum (83-76-79). Sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim stöllum en keppendur voru alls 23 talsins, þar af 8 frá Íslandi.

Í flokki pilta 18 ára og yngri átti GA einnig tvo fulltrúa. Arnar Freyr Viðarsson lék á 241 höggi (82-79-80), eða 22 höggum yfir pari samtals, og endaði í 28.-32. sæti. Ágúst Már Þorvaldsson lék á 265 höggum (90-81-94), eða 46 höggum yfir pari samtals, og hafnaði í 49. sæti. Keppendur í piltaflokki voru 55 talsins, þar af 14 frá Íslandi.

Er allt að fara til fjandans í þessum heimi?

Þorleifur Leó Ananíasson skrifar
06. apríl 2026 | kl. 06:00

Við þurfum lifandi miðbæ

Sigtryggur Ellertsson skrifar
02. apríl 2026 | kl. 06:00

Hvað er lífsgæðakjarni?

Hallgrímur Gíslason skrifar
30. mars 2026 | kl. 14:30

Gerum hlutina almennilega!

Óðinn Svan Óðinsson og Geir Kristinn Aðalsteinsson skrifa
30. mars 2026 | kl. 13:30

Tollabandalag ESB og mörk „sérlausna“

Erna Bjarnadóttir skrifar
30. mars 2026 | kl. 09:00

Hingað til náms. Hér til framtíðar.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þorsteinn Kristjánsson skrifa
30. mars 2026 | kl. 08:30