Skemmdarverk unnin á flötum á Jaðarsvelli
Það var ófögur sjón sem blasti við starfsmönnum Golfklúbbs Akureyrar (GA) í morgun þegar þeir fóru út á völl og sáu að miklar skemmdir höfðu verið unnar á nokkrum flötum á Jaðarsvelli. Ljóst þykir að skemmdirnar séu eftir vélknúið hjól, eða krossara, að öllum líkindum rafmagnskrossara, og hefur hann tætt upp flatirnar og skilið eftir ljót sár.

Hér má sjá skemmdirnar á 5. flöt vallarins.
Umferð vélknúinna ökutækja er með öllu óheimil á Jaðarsvelli og óskar golfklúbburinn eftir því að fólk sem gengur um göngustígana sem liggja gegnum golfvöllinn að láta vita ef vart verður um slíka umferð á vellinum. Lögreglu hefur þegar verið gert viðvart um málið.
„Þetta er gífurlega svekkjandi að sjá, við vinnum sleitulaust hér við að koma vellinum í gegnum veturinn og svo fáum þetta eins og blauta tusku í andlitið. Þetta eru mestu skemmdir sem hafa verið unnar á vellinum í fjölmörg ár,“ segir Steindór Kr. Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA í frétt á vef klúbbsins í morgun.

Skemmdir á 4. flöt.
„Við munum gera allt okkar til að komast til botns í þessu. Við erum að vinna úr okkar myndavélakerfi og munum afhenda það efni til lögreglu en óskum jafnframt eftir því að aðilinn gefi sig fram,“ bætir Steindór við en völlurinn er á mjög viðkvæmum stað um þessar mundir þegar frostið er að fara úr honum og mikil bleyta og því hafa svona skemmdarverk gríðarleg áhrif.

6. flöt.
Fyrir okkur öll!
Akureyrarlistinn ætlar að taka skýra stefnu í tæknimenntun grunnskólanna
Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur?
Samgöngur eiga að styðja við vöxt – ekki hamla honum