Fara í efni
Umræðan

Gleymda forvörnin

Forvarnir barna eru gríðarlega mikilvægar þegar kemur að lýðheilsu samfélagsins. Þegar rætt er um forvarnir er nær eingöngu talað um mikilvægi íþróttastarfs. Þó er mikilvæg forvörn sem gleymist oft í umræðunni: tónlistarkennsla.

Ritrýndar rannsóknir sýna að virk þátttaka barna í tónlist styður við andlega heilsu, eykur félagsfærni og styrkir sjálfsmynd. Börn sem fá tækifæri til að tjá sig í gegnum tónlist eru líklegri til að þróa með sér seiglu og jákvæða sjálfsmynd, sem skiptir sköpum þegar tekist er á við áskoranir lífsins. Það er kjarni forvarna: að efla innri styrk áður en vandinn verður til.

Tónmenntakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar tók dýfu en hefur verið á uppleið undanfarin ár með samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri. Mikilvægt er að efla þetta samstarf og tryggja að tónmenntakennsla haldi áfram í öllum grunnskólum bæjarins.

Helsta hindrunin fyrir þátttöku grunnskóla í samstarfinu er skortur rými til kennslu innan skólanna. Ein möguleg lausn, sem bent hefur verið á, að setja upp færanlegar kennslueiningar við skólana. Það þarf að tryggja rými innan skóla Akureyrarbæjar fyrir tónmenntakennslu sem gæti einnig nýst fyrir einkatíma nemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Það myndi auðvelda nemendum að sækja nám í sínu skólahverfi, stytta vinnudag nemenda, skapa Tónlistarskólanum meira pláss í Hofi og stytta biðlista.

Sem frambjóðandi VG á Akureyri tel ég ljóst að hér höfum við verk að vinna. Með því að hugsa skipulagið heildrænt getum við brotið niður þær hindranir sem í dag standa í vegi fyrir jöfnu aðgengi barna að tónlistarnámi.

Það er kominn tími til að hætta að líta á tónlist sem aukaatriði. Hún er lykilþáttur í velferð barna, og þar með framtíð Akureyrar.

Stefán Oddur Hrafnsson er faðir, kennaranemi, og situr í öðru sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30