Fara í efni
Umræðan

„Geta þau ekki alveg borgað meira?“

Mynd: Axel Þórhallsson
Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir fundi í dag um fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar á baðlón. Fundurinn fer fram á veitingastað Skógarbaðanna, Skógur Bistro, og hefst kl. 17:00.
 
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi, Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og Finnur Aðalbjörnsson eigandi Skógarbaðanna, verða með framsögu en svo verður opnað fyrir umræður.
„Ferðaþjónustan hefur lýst yfir þungum áhyggjum af þessari skattahækkun ríkisstjórnarinnar en til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr ellefu prósentum í 24 prósent. Þetta bætist við kílómetragjaldið sem nú þegar hefur áhrif á bílaleigurnar og þ.a.l. ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir í tilkynningu um fundinn.
 
„Alls eru fjögur stór baðlón í Norðausturkjördæmi; Skógarböðin á Akureyri, VÖK á Egilsstöðum, Jarðböðin á Mývatni og Geosea á Húsavík sem öll hafa fjárfest mikið á undanförnum árum. Nú stendur yfir enn meiri uppbygging í Skógarböðunum og Jarðböðunum,“ segir í tilkynningunni.
 
„Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar virðast engan endi ætla að taka. Áfram er ráðist á landsbyggðina og nú er spjótunum beint að ferðaþjónustunni. Akureyringar og Norðausturkjördæmi í heild sinni eiga þessum frábæru baðlónum mikið að þakka en þau hafa fjárfest gríðarlega í sinni uppbyggingu og skapað störf og tekjur fyrir sitt nærumhverfi. Ég hlakka til að eiga samtal við Akureyringa og nærsveitunga um þessi mál,“ segir Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
 
Hlekkur á viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/eQ7yTnm18

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00