Fara í efni
Umræðan

Nýtt flugfélag? Öllum boðið á fund í hádeginu

Eigendur Skógarbaðanna halda upp á það í dag að nýr mánuður er genginn í garð með tilkynningu um að stofnað verði flugfélagið Forest Air. Málið ku verða kynnt á veitingastað Skógarbaðanna í hádeginu í dag, þangað eru allir velkomnir og fólk raunar hvatt til þess að mæta.
 
Svohljóðandi orðsending var birt í morgun:
 
 

Kæru vinir, það er komið að næstu tilkynningu varðandi uppbyggingu hjá okkur í Skógarböðunum. Framkvæmdir við hótelið okkar ganga vel og stefnt er að opnun um mitt ár 2027. 

Undanfarnar vikur höfum við fundið fyrir miklum áhuga erlendra gesta sem og heimamanna á beinu flugi frá meginlandi Evrópu og Norður Ameríku til Akureyrar. Icelandair hefur ekki sýnt áhuga á því að sinna þessum fluglegg og höfum við því ákveðið að ráðast í næsta verkefni og munum við kynna stofnun Forest Air í dag klukkan 12 hjá okkur í Skógarböðunum.
 
Við hvetjum alla sem vilja kynna sér þetta verkefni okkar að mæta til okkar á Bistró, heyra okkar áætlanir og taka þátt í þessu verkefni með okkur.
 

Beint flug út í heim frá Akureyri er bæjarbúum hugleikið og því ekki ólíklegt að margir hlaupi til og skundi á fundinn í hádeginu.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00