Fréttir
Formenn nefnda og ráða á kjörtímabilinu
22.05.2026 kl. 08:00
Mynd: Þorgeir Baldursson
Fulltrúar nýs meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar kynntu í gær málefnasamning meirihlutans, eins og akureyri.net greindi frá, og þá kom líka í ljós hvernig formennska í nefndum og ráðum skiptist milli flokkanna.
Áður hafði komið fram að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti D-lista, verður bæjarstjóri, Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista verður formaður bæjarráðs og Gunnar Már Gunnarsson, sem var í 2. sæti B-lista verður forseti bæjarstjórnar.
Aðrar helstu nefndir og ráð skiptast milli flokkanna eins og hér segir:
- Formaður skipulagsráðs – Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti B-lista.
- Formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs – Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, sem var í 2. sæti L-lista.
- Formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs – Heimir Örn Árnason, sem var í 2. sæti D-lista.
- Formaður velferðarráðs – Guðbjörg Anna Björnsdóttir, sem var í 4. sæti B-lista.
- Formaður stjórnar Norðurorku – Preben Jón Pétursson, sem var í 3. sæti L-lista.
- Formaður stjórnar Hafnasamlags Norðurlands – Sverre Andreas Jakobsson, sem var í 3. sæti B-lista.