Fara í efni
Íþróttir

Handboltinn rúllar af stað í vikunni

Áfram mínir menn! Kátt var á hjalla síðast þegar Akureyrarfélögin mættust á Íslandsmótinu í handbolta, í lokaumferð deildarkeppninnar síðastliðinn vetur áður en úrslitakeppnin hófst. Leiknum lauk með jafntefli. Mynd: Ármann Hinrik

Spá fyrirliða og þjálfara liðanna í efstu deild karla og kvenna í handknattleik hefur verið birt og samkvæmt henni er KA spáð besta gengi Akureyrarliðanna í vetur. Keppni hefst í Olísdeild karla næstkomandi fimmtudag en fyrstu leikir í Olísdeild kvenna eru um helgina.

Hjá konunum bregður svo við að margföldum meisturum Vals er spáð þriðja sæti deildarinnar en að ÍBV verði meistari. Þessi lið léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í vor og þá hafði Valur betur.

  • KA/Þór er spáð 6. sætinu af 10 liðum í deildinni en liðunum hefur verið fjölgað úr 8.
  • Í fyrra var KA/Þór spáð. 7. sæti af 8 liðum en lenti í 6. sæti og komst í úrslitakeppnina en beið þar lægri hlut gegn Haukum.

 

Spá leikmanna og fyrirliða úrvalsdeildar kvenna:

  1. ÍBV - 231 stig
  2. Haukar - 220 stig
  3. Valur - 201 stig
  4. Fram - 173 stig
  5. ÍR - 131 stig
  6. KA/Þór - 109 stig
  7. Grótta - 95 stig
  8. Stjarnan - 85 stig
  9. HK - 78 stig
  • Selfoss er 10. lið deildarinnar. Selfyssingar  tóku sæti Víkings, sem dró lið sitt úr keppni skömmu fyrir mót, og þess vegna eru bara 9 lið í spánni.

Fyrsti leikur KA/Þórs verður alvöru áskorun en liðið mætir meistarakandidötum ÍBV á útivelli næstkomandi mánudagskvöld, 7. september. Fyrsti heimaleikurinn verður síðan gegn Haukum, laugardaginn 12. september kl. 17.

Akureyrarslagur í 3. umferð

Hjá körlunum er Haukum spáð Íslandsmeistaratitlinum en liðin sem léku til úrslita á síðasta keppnistímabili, Valur og FH, koma þar á eftir. Þannig að rétt eins og í kvennaflokknum er ekki búist við því að Valur verji titilinn. Efstu liðin þrjú eru í nokkrum sérflokki í spánni.

  • KA er spáð 4. sæti deildarinnar
  • Í fyrra var KA spáð 10. sætinu en hafnaði í því fimmta. Liðið sló síðan út ÍBV í 8-liða úrslitum en beið lægri hlut gegn Val í undanúrslitum.
  • Þór er spáð 8. sæti deildarinnar
  • Í fyrra var Þór spáð 11. sætinu en hafnaði í því níunda og var ekki fjarri því að ná 8. sætinu og komast þar með í úrslitakeppnina.

 

Spá fyrirliða og þjálfara í úrvalsdeild karla:

  1. Haukar - 341 stig
  2. Valur - 333 stig
  3. FH - 315 stig
  4. KA - 249 stig
  5. Fram - 248 stig
  6. Afturelding - 227
  7. ÍBV - 193 stig
  8. Þór - 133 stig
  9. HK - 112 stig
  10. Víkingur - 90 stig
  11. Stjarnan - 79 stig
  12. Selfoss - 56 stig

Fyrsti leikur deildarinnar er næstkomandi fimmtudagskvöld þegar KA heimsækir HK. Þórsarar leika sinn fyrsta leik á laugardaginn á útivelli gegn Fram. Þórsarar taka síðan á móti HK í fyrsta heimaleiknum fimmtudagskvöldið 10. september en fyrsti heimaleikur KA er ekki fyrr en miðvikudaginn 16. september í þriðju umferðinni. Þá verður fyrsti Akureyrarslagur vetrarins þegar KA mætir Þór.