Alls konar íþróttaleikir í boði í vikunni
Áfram er nóg framboð af íþróttaviðburðum, heima og að heiman. Vetrargreinarnar komnar á fullt og örlagalaugardagur fram undan í fótboltanum. Handboltalið bæjarins spila öll í vikunni, sem og bæði körfuboltaliðin, blaklið karla og bæði íshokkíliðin. Þrír af hverjum fjórum kappleikjum næstu daga eru hins vegar á útivöllum.
- Handbolti: Karlalið Þórs og KA eiga bæði heimaleiki í vikunni. Þór tekur á móti Stjörnunni og KA á móti Aftureldingu. Bæði liðin töpuðu í síðustu umferð, Þór gegn ÍBV í Eyjum og KA gegn Stjörnunni í Garðabænum. KA færðist niður í fjórða sætið með tapinu, er þar með átta stig úr fyrstu sex leikjunum. Þór er í níunda sætinu með fjögur stig.
- Handbolti: KA/Þór náði í sín fyrstu stig með sigri á Stjörnunni á heimavelli í síðustu umferð, færði sig upp um tvö sæti með sigrinum. Þrjú lið eru jöfn í neðstu sætunum, KA/Þór, HK og Stjarnan, öll með tvö stig. KA/Þór sækir einmitt HK heim í næsta leik þar sem í boði eru mikilvæg tvö stig.
- Körfubolti: Karlalið Þórs í körfuboltanum hefur ekki enn náð að vinna leik það sem af er tímabilinu, þrjú töp í deildinni og eitt í bikarnum. Þórsarar sækja Fjölni heim í fjórðu umferð 1. deildarinnar á föstudag.
- Íshokkí: Fyrsta Ofurhelgin af þremur í Toppdeild karla í íshokkí er fram undan. Þetta fyrirkomulag var prófað í fyrra og hefur greinilega tekist það vel að ákveðið var að halda áfram með það. Ofurhelgin felst í því að meistaraflokksliðin þrjú, SA, SR og Fjölnir mætast öll einu sinni á sama stað yfir helgina. Ofurhelgarnar verða þannig einu sinni á vetri í hverri skautahöll. Sú fyrsta fer fram í Skautahöllinni í Laugardal um komandi helgi. SA Víkingar, sem unnu eftirminnilegan 6-0 sigur á SR um liðna helgi, spila sína leiki á föstudag og laugardag. Þeir mæta SR á föstudag og Fjölni á laugardag. Reykjavíkurfélögin mætast svo á sunnudag. Liðið sem heldur Ofurhelgina fær hvíldardag á milli, spilar á föstudegi og sunnudegi.
- Blak: Karlalið KA í blaki heldur vestur á Ísafjörð þar sem tekin verður tveggja leikja helgi gegn Vestra. Fyrri leikurinn á laugardag og sá seinni á sunnudag. KA hefur spilað þrjá leiki til þessa og aðeins unnið einn þeirra, situr núna í 6. sæti deildarinnar með þrjú stig. Vestri er hins vegar í 2. sæti deildarinnar með átta stig úr jafnmörgum leikjum.
- Fótbolti: Á laugardag ræðst það hvort Akureyrarliðanna í karlafótboltanum fellur úr Bestu deildinni. Fyrir viku voru KA-menn með örlögin í eigin höndum, en það snerist við í næstsíðustu umferðinni, KA tapaði og Þór vann þannig að nú eru Þórsarar með örlögin í eigin höndum.
KA tekur á móti ÍBV á sama tíma og Þór sækir FH heim á laugardag kl. 14. Vinni Þór heldur liðið sér uppi, en KA fellur. KA þarf að vinna sinn leik og treysta á að Þór vinni ekki sinn leik til að snúa dæminu við, að KA haldi sér uppi, en Þór falli. Þriðji möguleikinn er svo að KA geri jafntefli og þyrfti þá að treysta á tap Þórs. Það myndi duga KA til að halda sér uppi vegna mun hagstæðari markatölu en hjá Þór. Hvernig sem fer er ljóst að Akureyrarliðin munu enda í 10. og 11. sæti deildarinnar, bara spurning hvort verður hvar.
- Staðan fyrir lokaumferðina
10. sæti - Þór - 27 stig - mínus 31 í markatölu
11. sæti - KA - 26 stig - mínus 13 í markatölu
- Staðan fyrir lokaumferðina
- Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfubolta hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í 1. deildinni og sækir ÍR heim í Breiðholtið í næstu umferð. Þór er í 4. sæti deildarinnar, en fimm efstu liðin hafa öll unnið tvo leiki. ÍR er í 8. sæti deildarinnar með einn sigur úr tveimur leikjum. Þór vann KV örugglega á heimavelli í síðustu umferð.
- Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar verður einnig á faraldsfæti eins og karlarnir. Lið SA sækir Íslandsmeistara SR heim í Laugardalinn á laugardag. Aðeins er þremur leikjum lokið í deildinni. SA hefur unnið tvo leiki, en tapaði einum í framlengingu, einmitt fyrir SR.
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 7. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
Þór - Stjarnan
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 7. umferð
KA-heimilið kl. 19
KA - Afturelding
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER - handbolti, körfubolti, íshokkí
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 7. umferð
Kórinn í Kópavogi kl. 19
HK - KA/Þór
- Körfubolti
1. deild karla, 4. umferð
Dalhús í Grafarvogi kl. 19:15
Fjölnir - Þór
- Íshokkí
Toppdeild karla, Ofurhelgi
Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
SR - SA
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER - blak, fótbolti, körfubolti, íshokkí
- Blak
Unbroken-deild karla
Íþróttahúsið Torfnesi á Ísafirði kl. 13
Vestri - KA
- Fótbolti
Besta deild karla, neðri hluti, 27. umferð
KA-völlur (Greifavöllurinn, gervigras við KA-heimilið) kl. 14
KA - ÍBV
- Fótbolti
Besta deild karla, neðri hluti, 27. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
FH - Þór
- Íshokkí
Toppdeild karla, Ofurhelgi
Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
Fjölnir - SA
- Körfubolti
1. deild kvenna, 4. umferð
Skógarsel í Breiðholti kl. 18
ÍR - Þór - Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin í Reykjavík kl. 19:45
SR - SA
SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER - blak
- Blak
Unbroken-deild karla
Íþróttahúsið Torfnesi á Ísafirði kl. 13
Vestri - KA
Stöður í deildum og leikjadagskrár
Blak
Fótbolti
Handbolti
Íshokkí
Körfubolti
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.
Indverskur matur og kvíðaspurningin
Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna
Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað