Fótboltaveislunum lauk á sólskinsnótum
Fertugasta N1 móti KA í fótbolta fyrir stráka í 5. flokki lauk síðdegis í gær, á sama tíma og úrslitaleikjum fullorðna fólksins á Pollamóti Þórs og Samskipa. „Veislurnar“ munu báðar hafa heppnast sérlega vel eins og jafnan áður, og allt er gott sem endar vel; veðurguðirnir bænheyrðu mótshaldara og keppendur þannig að sól skein í heiði í gær og því réðust úrslit við bestu hugsanlegu aðstæður.
Þróttarar sigruðu í keppni A-liða á N1 mótinu, argentínsku deildinni; þeir unnu Akurnesinga 4:1 í úrslitaleiknum og myndin að ofan er tekin á því augnabliki þegar Þróttarar komu boltanum í mark ÍA í fyrsta skipti.
Að neðan má sjá vel heppnaða Panenka-vítaspyrnu á Pollamótinu; markmaðurinn gerir ráð fyrir að vítaskyttan spyrni boltanum í annað hvort hornið og kastar sér niður, en skyttan vippar boltanum mjúklega í mitt markið.

- Fyrir þá sem ekki vita verður að nefna að vítaspyrna þessarar gerðar er kennd við Tékkann Antonin Panenka, sem fyrstur beitti aðferðinni þegar hann tryggði Tékklandi Evrópumeistaratitilinn 1976. Úrslitaleikur við Vestur-Þjóðverja endaði 2:2 og í vítakeppni steig Panenka síðastur fram þegar fjórir landar hans höfðu skorað en þrír af fjórum Þjóðverjum. Þá bauð Tékkinn upp á þessa snilld sem allar götur síðan hefur haldið nafni hans á lofti.
Fleiri myndir á morgun
Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB
Drífum í að stytta hringveginn
Við ætlum að leggja okkar af mörkum
Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn