Fara í efni
Umræðan

Kraftmikið Þórslið sigraði Breiðablik

Christian „Greko“ Jakobsen með boltann í leiknum í kvöld. Hann gerði eina markið sem tryggði Þórsurum þrjú afar dýrmæt stig. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þór sigraði Breiðablik 1:0 á heimavelli í kvöld í efstu deild karla í knattspyrnu, Bestu deildinni. Daninn Christian „Greko“ Jakobsen gerði eina markið eftir hornspyrnu seint í fyrri hálfleik.

Þórsarar fóru með sigrinum úr botnsætinu, tveimur stigum upp fyrir FH-inga sem eru nú neðstir með 13 stig. Þór og KA eru bæði með 15 stig en KA á leik til góð í Keflavík á morgun og FH-ingar taka þá á móti KR-ingum. Það eru tveir síðustu leikirnir í 17. umferðinni.

Þórsarar léku mjög vel í fyrri hálfleik í kvöld og forystan að honum loknum var mjög sanngjörn; munurinn hefði í raun getað verið meiri. Blikar herjuðu hressilega á heimamenn í seinni hálfleik en tókst ekki að skora og Þórsarar fögnuðu sætum sigri.

Eftir slæmt tap fyrir Frömurum á útivelli 12. júlí hefur Þórsliðið náð sjö stigum í þremur leikjum og aðeins fengið á sig eitt mark; Þór vann Íslandsmeistara Víkings 2:1, gerði 0:0 jafntefli við KA og sigraði Blika í kvöld. Þórsarar eru enn næst neðstir sem fyrr segir en það segir sína sögu um hve baráttan frá miðri deild og niður úr er hörð og staðan orðin jöfn að þeir eru aðeins fjórum stigum á eftir ÍA og Val sem eru í 5. og 6. sætinu.

Meira seinna

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30

Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi

Hlín Bolladóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 09:30

Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum

Oddný Jónsdóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 06:00

Námaskarð, öryggismál

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
11. september 2026 | kl. 16:00

Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
09. september 2026 | kl. 10:50