Handbolti: Öruggur útisigur KA gegn Val
KA vann sannfærandi 39:33 útisigur á Íslandsmeisturum Vals í efstu deild karla, Olísdeildinni, í gærkvöld. KA var yfir allan leikinn og þeir nafnar Dagur Árni Heimisson og Dagur Gautason fóru sérstaklega illa með Valsvörnina og skoruðu 10 mörk hvor. Gautason nýtti 10 af 11 skotum sínum í leiknum og Ágúst Elí Björgvinsson varði vel í markinu.
Sóknarleikur KA var sérstaklega öflugur í fyrri hálfleik, þar sem liðið skoraði 22 mörk gegn 14 mörkum heimamanna. Síðustu leikir Valsara hafa verið miklir markaleikir og skemmst er að minnast viðureignar þeirra við Fram, sem Valur tapaði stórt þrátt fyrir að skora 40 mörk. Framarar skoruðu nefnilega 47 og spurning hvort KA næði að bæta um betur í þessum leik.
Valur minnkaði muninn í eitt mark
Framan af seinni hálfleik stefndi í það, því KA byrjaði hálfleikinn af krafti og eftir nokkurra mínútna leik var forskotið orðið 11 mörk, 26:15. Þá tóku Valsmenn við sér og skoruðu sjö mörk í röð á skömmum tíma og héldu síðan áfram að saxa á forskot KA. Um miðjan seinni hálfleik var munurinn aðeins eitt mark, 28:27, og allt í einu var spenna hlaupin í leikinn. KA-menn náðu þó að halda haus og auka forystuna á nýjan leik og tryggja sér öruggan sigur, 39:33.
KA hefur þar með unnið 3 af fyrstu 4 leikjunum í deildinni og er sem stendur í öðru sæti á eftir Haukum, sem hafa fullt hús stiga. Næsti leikur liðsins er gegn ÍBV í KA-heimilinu næstkomandi fimmtudagskvöld.
Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 10 (2 víti), Dagur Gautason 10, Arnór Ísak Haddsson 4, Andri Freyr Friðriksson 3, Einar Birgir Stefánsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 3, Morten Linder 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 1, Daði Jónsson 1, Patrekur Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 15, Bruno Bernat 0.
Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 13 (5 víti), Arnór Snær Óskarsson 5, Bessi Teitsson 3, Tjörvi Týr Gíslason 3, Andri Finnsson 2, Jón Ásgeir Eyjólfsson 2, Logi Finnsson 2, Sigurður Atli Ragnarsson 2, Ágúst Ingi Óskarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8, Jens Sigurðarson 5.
Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?
Ónýtt drasl-fólkið
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi