Fara í efni
Umræðan

Byrja að bólusetja börn í næstu viku

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Stefnt er að því að hefja bólusetningar akureyrskra barna, 5 til 11 ára, við Covid-19 um miðja næstu viku. Horfið hefur verið frá því að bólusetja í skólum, eins og til stóð, en þess í stað ákveðið að nýta áfram aðstöðu á slökkvistöðinni þar sem bólusett hefur verið til þessa og reynst vel, skv. upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN).

Byrjað verður á að bólusetja grunnskólabörn og í framhaldi af því verða leikskólabörn bólusett. Tekið er fram í tilkynningu að bólusetning sé alltaf val. 

Allir sem að verkefninu koma eru nú að undirbúa framkvæmd bólusetninganna til að allt gangi eins vel og hægt er. Lögð er áhersla á öryggi, trúnað og að upplifun barnanna verði góð,“ segir í tilkynningu frá HSN.

„Heilsugæslan skipuleggur fyrirkomulag bólusetninganna og eru skólahjúkrunarfræðingar þar í lykilhlutverki. Læknir og sjúkraflutningamenn verða líka á bólusetningastað.“

Fyrirkomulagið

Foreldrar sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að skrá barn sitt í bólusetninguna. Hlekkur á skráningarsíðu er væntanlegur, og mun Akureyri.net koma því á framfæri þegar hlekkurinn verður tilbúinn.

Þar verður hægt að:

  • skrá barn sitt í bólusetningu
  • skrá aðra sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
  • hafna/bíða með bólusetningu

„Þegar barn hefur verið skráð í bólusetningu er sent strikamerki með SMS skilaboðum. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef það vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Það að sýna strikamerki á bólusetningastað er því ígildi samþykkis.

Forsjáraðilar barna á þessum aldri sem ekki nota Heilsuveru munu geta skráð barn sitt í bólusetningu á bolusetning.covid.is hlekkurinn er ekki tilbúinn en verður það fljótlega.“

Mikilvægara en veiðigjöldin

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. júlí 2025 | kl. 15:00

Að klára verkefnin – hvað er í gangi á Ásnum ?

Jón Stefán Jónsson skrifar
07. júlí 2025 | kl. 08:50

Ef við getum ekki lækkað fasteignaskatt, þá eigum við að hagræða

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
03. júlí 2025 | kl. 14:00

Verulegt rými til framfara

Árni Guðmundsson skrifar
02. júlí 2025 | kl. 11:00

Látið hjarta Akureyrar í friði

Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
01. júlí 2025 | kl. 06:00

Fiskeldi og samfélagsábyrgð

Eyjólfur Ármannsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 09:45