Fara í efni
Umræðan

Búist við margmenni í bólusetningu í vikunni

Bólusetning á slökkvistöðinni um miðjan síðasta mánuð. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Bólusett verður gegn Covid-19 tvo daga í þessari viku á Slökkvistöðinni á Akureyri og er gert ráð fyrir margmenni báða dagana frá klukkan 9.00 til 16.00.

Boðað verður til bólusetninga einn dag í næstu viku og er það síðasti möguleiki á þessu ári. Næstu bólusetninga eru sem hér segir:

  • Miðvikudag 8. desember frá kl. 9.00 til 16.00 – mRNA Moderna
  • Fimmtudag 9. desember frá kl. 9.00 til 16.00 – mRNA Pfizer
  • Fimmtudag 16. desember frá kl. 13.00 til 15.00
  • Fimmtudag 6. janúar frá kl. 13.00 til 16.00

Til þess að komast hjá umferðartöfum er fólk beðið um að koma gangandi ef kostur er eða að sameinast í bíla. Þá er fólk beðið um að mæta þann dag sem það er boðað í bólusetningu.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill einnig koma eftirfarandi á framfæri:

  • Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki eru 5-6 mánuðir liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar þrír mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
  • Bólusett verður með mRNA Pfizer og mRNA Moderna, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
  • Athugið að ekki er mælst til þess að karlmenn yngri en 40 ára og konur yngri en 18 ára fái Moderna
  • Munið að 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.

Send eru út boð í örvunarskammta. Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað nýtt sér fyrri boð eru velkomnir á auglýstum opnunartíma á Akureyri. Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í fylgd forráðamanna.

Sjá nánar á vef embættis landlæknis:

Sóttvarnalæknir mælir með þriðja skammti fyrir alla 16 ára og eldri þegar 6 mánuðir eru frá grunnbólusetningu gegn COVID-19

Sjá nánar á vef stjórnarráðsins:

COVID-19: Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00

Hér rís önnur heilsugæslustöð

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. mars 2024 | kl. 13:11

Akureyri stendur ekki í vegi fyrir kjarasamningum

Heimir Örn Árnason skrifar
06. mars 2024 | kl. 15:15