Fara í efni
Umræðan

BSO má vera á lóðinni til 1. maí

Mynd: Þorgeir Baldursson

Leigubílastöðin BSO (Bifreiðastöð Oddeyrar) hefur fengið frest til 1. maí í vor til að flytja starfsemi sína af lóðinni á horni Strandgötu og Glerárgötu. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs síðsumars í fyrra átti starfsemin að vera farin fyrir 21. þessa mánaðar – eftir tvo daga – en bæjarráð varð í morgun við beiðni um frest. 

Þegar bæjarráð staðfesti úthlutun lóðanna Hofsbótar 1 og 3 til SS Byggis, 21. ágúst í fyrra, var ákveðið að BSO þyrfti að fara með starfsemi sína og húsakost af lóðinni innan sex mánaða. 

Beiðni frá BSO var tekin fyrir á fundi bæjarráðs í morgun. Þar kom fram að framkvæmdir á vegum SS Byggis fari ekki strax af stað, undirbúningsvinna sé enn í gangi og „hann sér ekkert því til fyrirstöðu, sín megin, að við getum verið lengur á lóðinni,“ segir í bréfi BSO, þar sem vísað er til Sigurðar Sigurðssonar, eiganda SS Byggis.

BSO óskaði eftir fresti fram að sumri eða hausti, eða þangað til framkvæmdir fara af stað, og bæjarráð samþykkti að veita frest til 1. maí sem fyrr segir.

Ekki liggur fyrir hvert starfsemi BSO verður flutt þegar þar að kemur.

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00