Fara í efni
Umræðan

Vinningstillagan sýnd í dag – öll velkomin

Vinningstillagan í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis verður tilkynnt við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi kl. 17 í dag. Þrjár efstu tillögurnar verða verðlaunaðar og gefst áhugasömum jafnframt kostur á að kynna sér tillögurnar.

Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar og formaður dómnefndar, mun afhenda verðlaunin, en fyrstu verðlaun nema 7 milljónum króna, önnur verðlaun 3 milljónum og þriðju verðlaun 1 milljón króna. 

Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og fjallaði dómnefnd því um 15 gildar tillögur.

Á kynningunni verður farið yfir vinningstillöguna og jafnframt sagt frá næstu skrefum í áframhaldandi vinnu og framkvæmdum á svæðinu. Takið er fram á vef Akureyrarbæjar að öll séu velkomin á fundinn í Hofi.

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00