Fara í efni
Umræðan

Sextán spreyttu sig á skipulagi Akureyrarvallar

Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Stefnt er að því að kynna niðurstöðu framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis hans, sem efnt var til í samstarfi Akureyrarbæjar og Arkitektafélags Íslands, þriðjudaginn 26. maí. Þetta kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar.

Sextán tillögur bárust, en ein tillagan reyndist ógild og komu því 15 tillögur til umfjöllunar hjá dómnefnd. „Tilgangur samkeppninnar var að leita að hönnunarhópi og fá fram raunhæfa tillögu að miðbæjarumhverfi sem væri eftirsóknarvert til búsetu og suðupottur fyrir margvíslega starfsemi í hjarta Akureyarbæjar,“ segir á vef bæjarins. 

Ætlunin er að tilkynna niðurstöðu samkeppninnar og afhenda verðlaun við athöfn í Hofi þriðjudaginn 26. maí kl. 17. Fyrstu verðlaun eru sex milljónir króna, þrjár milljónir í önnur verðlaun og ein milljón í þriðju verðlaun. 

Í dómnefnd samkeppninnar áttu sæti Borghildur Sölvey Sturludóttir frá Arkitektafélagi Íslands, Fríða Björg Eðvarðsdóttir frá Félagi íslenskra landslagsarkitekta og þau Halla Björk Reynisdóttir, Hlynur Jóhannsson og Sindri Kristjánsson frá Akureyrarbæ. Um samkeppnina og áherslur dómnefndar má meðal annars lesa í tilkynningu Akureyrarbæjar frá 31. janúar.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00