Fara í efni
Umræðan

Brons í 2. deild B á HM karla í íshokkí

Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði fimm af mörkum Íslands í mótinu og Jóhann Már Leifsson átti sjö stoðsendingar. Hér fagna þeir einu marka Unnars í þrennunni í fyrsta leiknum. Mynd: ishokki.is.

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí, með fjölmarga Akureyringa innanborðs, hafnaði í 3. sæti 2. deildar B á Heimsmeistaramótinu. Liðið lauk keppni í Búlgaríu í morgun.

Eftir þrjá sigra í fyrstu þremur leikjunum, eins og fram kom í frétt akureyri.net í gær, mættu Íslendingar liði Búlgara í fjórða leiknum í gærmorgun. Búlgarir voru þá án sigurs í fyrstu þremur leikjunum, en íslenska liðið náði sér ekki á strik og höfðu Búlgarir betur, 3-1. Alex Máni Sveinsson skoraði eina mark Íslands. Helgi Ivarsson varði 22 af 24 skotum, eða 91,67%.

Lokaleikur íslenska liðsins var síðan í dag og hefði liðið geta tryggt sér gullið með sigri, en það gekk ekki eftir, 2-5 tap. Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði annað af mörkum Íslands. SA-leikmennirnir Bjarmi Kristjánsson, Heiðar Gauti Jóhannsson og Jóhann Már Leifsson áttu allir stoðsendingar í dag, eins og Akureyringurinn Ólafur Baldvin Björgvinsson, sem spilar erlendis. Helgi Ivarsson, sem einnig spilar erlendis, varði 23 af 27 skotum, eða 85,19%.

Unnar Hafberg Rúnarsson var markahæstur leikmanna SA í mótinu, skoraði fimm mörk, þar af þrennu í fyrsta leiknum. Jóhann Már Leifsson átti sjö stoðsendingar í mörkum Íslands.

Nokkrir punktar um leikmenn SA úr tölfræði mótsins

  • Stig (mörk+stoðsendingar)
    Jóhann Már Leifsson í 14. sæti með sjö stig, allt stoðsendingar.
  • Skoruð mörk
    Unnar Hafberg Rúnarsson í 5. sæti með fimm mörk.
  • Stoðsendingar
    Jóhann Már Leifsson í 2. sæti með sjö stoðsendingar
  • Dómarakast (Face-off)
    Heiðar Gauti Jóhannsson í 3. sæti með 38 unnin af 62 (61,29%)
    Jóhann Már Leifsson í 4. sæti með 44 unnin af 74 (59,46%)

Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
14. apríl 2026 | kl. 09:00

Fyrir enn betri Akureyrarbæ

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
14. apríl 2026 | kl. 08:00

Er (ó)mögulegt að byggja ódýrt?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
13. apríl 2026 | kl. 14:30

Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 09:00

Eldri borgarar – gullkista Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson og Svava Steingrímsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 08:45

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30