Fara í efni
Umræðan

Akureyrskar hokkíkonur meirihluti landsliðsins

A-landslið kvenna í íshokkí kom saman til æfinga um páskana og hélt utan áleiðis til Bled í Slóveníu þar sem liðið spilar í HM, 2. deild A, dagana 13.-19. apríl. Íslenska liðið mætir gestgjöfunum, Slóvenum, í fyrsta leik 13. apríl, Pólverjum 15. apríl, Ástralíu 17. apríl og Tævan 18. apríl.  

Landsliðið hélt utan fyrir helgi, fyrst til Slóvakíu þar sem liðið æfði og lék æfingaleik, áður en haldið var áfram til Slóveníu.

Af 22 landsliðskonum eru níu núverandi leikmenn Skautafélags Akureyrar, auk sjö sem koma upphaflega úr röðum SA, en spila nú ýmist erlendis eða í Reykjavík. Sex leikmenn í hópnum koma frá Reykjavíkurfélögunum SR og Fjölni.

Mögulegt verður að fylgjast með gengi liðsins, tölfræði, úrslitum og fleiru á vef IIHF, Alþjóða íshokkísambandsins - sjá hér. Þá verða leikirnir í beinu streymi á streymisveitu Íshokkísambandsins á icehockeyiceland.tv.

Leikmenn A-landsliðs kvenna

Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir
Amanda Ýr Bjarnadóttir
Andrea Diljá Bachmann
Anna Sonja Ágústsdóttir
Bríet María Friðjónsdóttir
Díana Lóa Óskarsdóttir
Elísa Sigfinnsdóttir
Eva Hlynsdóttir
Eyrún Arna Garðarsdóttir
Friðrika Ragna Magnúsdóttir
Gunnborg Petra Jóhannsdóttir
Herborg Rut Geirsdóttir
Katrín Rós Björnsdóttir
Kolbrún Björnsdóttir
Laura-Ann Murphy
Magdalena Sulova
María Guðrún Eiríksdóttir
Saga Margrét Sigurðardóttir
Silvía Rán Björgvinsdóttir
Sólrún Assa Arnardóttir
Sunna Björgvinsdóttir
Teresa Regína Snorradóttir

Starfsmenn liðsins
Jón Benedikt Gíslason, aðalþjálfari
Gunnar Guðmundsson, aðstoðarþjálfari
Shawlee Gaudreault, markmannsþjálfari
Vera Ólafsdóttir, kírópraktor/Heilbrigðisstarfsmaður
Hulda Sigurðardóttir, tækjstjóri
Brynja Vignisdóttir, liðsstjóri

Þær Aðalheiður Anna, Amanda Ýr, Anna Sonja, Eyrún Arna, Herborg Rut, Kolbrún, Magdalena, Silvía Rán og Sólrún Assa eru allar leikmenn SA. Auk þeirra koma Díana Lóa, Gunnborg Petra, Katrín Rós, María Guðrún, Saga Margrét, Sunna og Teresa Regína allar úr röðum SA, en spila nú með öðrum liðum.

Aðalþjálfari liðsins er SA-maðurinn Jón Benedikt Gíslason, Shawlee Gaudreault, markvörður SA, sér um þjálfun markvarða og þær Hulda tækjastjóri og Brynja liðsstjóri eru báðar frá Skautafélagi Akureyrar.

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35

Hvað er það sem er svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:30

Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar

Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:15

Bílastæði við Sunnuhlíð

Heimir Örn Árnason og Arna Rut Gunnarsdóttir skrifa
09. apríl 2026 | kl. 09:10