Misstu af verðlaunum eftir tap í vítakeppni
A-landslið kvenna í íshokkí hafnaði í neðsta sæti II. deildar A á Heimsmeistaramótinu þar sem liðið lauk keppni í Bled í Slóveníu í gær. Íslenska liðið vann einn leik, en tapaði þremur. Lokaleikur liðsins, gegn Tævan í gær, fór í framlengingu og vítakeppni þar sem þær tævönsku höfðu betur, 4-3. Með sigri hefði íslenska liðið nælt sér í bronsverðlaun.
Íslenska liðið lauk því keppni með fjögur stig, eins og reyndar Tævan og Ástralía, en raðast neðst þessara þriggja liða. Pólland vann mótið, Slóvenía vann silfrið, en eini sigur íslenska liðsins kom gegn gestgjöfunum í fyrsta leik. Tævan fékk bronsið, Ástralía endaði í 4. sæti og Ísland í því fimmta. Fimm lið öttu kappi í þessu móti, en það sjötta, Norður-Kórea, nýtti ekki sinn keppnisrétt.
Íslenska landsliðið var að meirihluta skipað akureyrskum hokkíkonum, eins og akureyri.net hefur áður greint frá.
Silvía Rán Björgvinsdóttir, leikmaður SA, var valin maður leiksins í eina sigri íslenska liðsins þar sem hún skoraði tvö mörk í þriðja leikhluta í viðsnúningi þegar Ísland vann gestgjafana í Slóveníu, 4-3, í fyrsta leik. Smellið á myndina til að opna myndaalbúm frá leiknum. Mynd: IIHI/IHI.
Hér að neðan eru úrslit leikja íslenska liðsins ásamt mörkum og stoðsendingum leikmanna úr röðum SA, núverandi og fyrrverandi.
- Ísland - Slóvenía 4-3 (0-0, 1-3, 3-0)
Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 2/0 - Einnig: Sunna Björgvinsdóttir 1/3, Teresa Snorradóttir 1/1.
Leikskýrslan - Ísland - Pólland 1-4 (1-1, 0-0, 0-3)
Mörk/stoðsendingar: Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 1/0, Sunna Björgvinsdóttir 0/1.
Leikskýrslan - Ísland - Ástralía 1-4 (0-2, 1-1, 0-1)
Mörk/stoðsendingar: Katrín Björnsdóttir 0/1, Sunna Björgvinsdóttir 0/1.
Leikskýrslan - Ísland - Tævan 3-4 (0-1, 2-2, 1-0, 0-0, 0-1)
Mörk/stoðsendingar: Magdalena Sulova 1/0, Herborg Rut Geirsdóttir 1/0, Kolbrún Björnsdóttir 0/1. Einnig: Teresa Snorradóttir 1/0, Sunna Björgvinsdóttir 0/2, Saga Blöndal Sigurðardóttir 0/1
Leikskýrslan
Nokkrir punktar um leikmenn SA og aðra Akureyringa úr tölfræði mótsins:
- Stig (mörk+stoðsendingar)
Sunna Björgvinsdóttir í 2.-3. sæti, 8 stig (1+7) - Skoruð mörk
Silvía Rán Björgvinsdóttir 7.-12. sæti, skoraði 2 mörk - Stoðsendingar
Sunna Björgvinsdóttir í 2. sæti, 7 stoðsendingar - Dómarakast (Face Off)
Silvía Rán Björgvinsdóttir í 6. sæti, 10 af 16 (62,5%)
Sunna Björgvinsdóttir í 7. sæti, 51 af 82 (62,2%)
Sólrún Assa Arnardóttir í 11. sæti, 28 af 54 (51,85%)
Opið bréf til Drenglyndis
Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri!
Regnbogagrýlan
Kirkjan, Snorri og kynjamálin
