Bray og McDonald mæta á ný – skráning í dag
Skráning hefst á hádegi í dag, sunnudag, á stærsta pílumót ársins hér á landi, opna Akureyrarmótið sem verður í Sjallanum 10. og 11. apríl og kallað hefur verið „Sjally Pally“ með vísan í heimsmeistaramótið sem haldið er árlega í „Ally Pally“ í London.
Keppendur í Sjallanum verða 224; 192 karlar og 32 konur, og ef marka má vinsældir mótsins undanfarin ár er næsta víst að áhugasamir verða að hafa hraðar hendur. Í fyrra fylltist mótið á fimm mínútum, að því er segir á heimasíðu Þórs.
2,5 milljónir í verðlaun
„Þetta verður í þriðja skiptið sem Akureyri Open verður í Sjallanum. Frábær stemning hefur myndast fyrir mótinu enda er öllu til tjaldað þessa helgi í Sjallanum. Það er ljóst að eftirspurn eftir þátttöku í mótið verður gríðarleg og því hvetjum við þá aðila sem hafa áhuga á að taka þátt að vera tilbúin að skrá sig,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að heildar verðmæti vinninga á mótinu verði 2 og hálf milljón króna.
Kallarinn og kynnirinn mæta aftur
„Mótið í ár verður hið glæsilegasta líkt og síðustu ár. Frægasti dómari og kallari í pílukasti, Russ Bray, verður á staðnum og mun sjá um að kalla úrslitakvöldið. Honum til halds og traust verður John McDonald. Þeir tveir hafa verið á stóra sviðinu í pílukasti til fjölda ára og því frábærar fréttir að fá þá aftur í SjallyPally!“ segir á heimasíðu Þórs.
Þátttökugjaldið í mótið er 12.500 kr. Almenn miðasala á úrslitakvöldið verður auglýst þegar nær dregur, segir í tilkynningu Þórsara, og að þátttakendur hafi forgang í miðakaupum á úrslitakvöldið.
- Mótinu í fyrra var streymt á Youtube í samstarfi við LiveDartsIceland. Með því að smella hér er hægt að sjá hápunkta frá mótinu.
Hreint ekki eins og atvinnuviðtal
Tjaldsvæðisreiturinn auglýstur „til sölu“
Gott að eldast
Hafirðu ekkert gott að segja er betra að þegja!