Fara í efni
Umræðan

Blak: Karlalið KA leikur líka til úrslita

Mynd af Facebook síðu KA

Kvennalið KA tryggði sér á fimmtudagskvöldið sæti í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki, eins og akureyri.net greindi frá, og í gærkvöldi gerði karlalið félagsins slíkt hið sama. KA-strákarnir, sem urðu í öðru sæti Unbroken-deildarinnar, tóku á móti Aftureldingu (sem varð í 3. sæti) og sigruðu 3:0. Fyrsta hrinan var mest spennandi, lokatölur 25:22 en í tveimur þeim seinni voru þeir öryggið uppmálið og unnu báðar 25:18.

KA-menn mæta Reykjavíkur-Þrótti í úrslitunum. Þróttarar, sem urðu í fjórða sæti deildarinnar, gerðu sér lítið fyrir og unnu deildarmeistara Hamars í tveimur leikjum – fyrst 3:2 (25:16, 17:25, 25:19, 23:25, 9:15) í Hveragerði  (síðan 3:0 (25:18, 25:18, 25:23) á heimavelli sínum, Laugardalshöllinni.

Fyrsti úrslitaleikurinn í KA-heimilinu á miðvikudagskvöldið. Annar úrslitaleikur liðanna verður í Laugardalshöll á sunnudag og sá þriðji á Akureyri fimmtudaginn 23. apríl. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari; komi til fjórða úrslitaleikis verður hann í Laugardalnum 26. apríl og sá fimmti í KA-heimilinum miðvikudag 29. apríl.

Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 09:00

Eldri borgarar – gullkista Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson og Svava Steingrímsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 08:45

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35

Hvað er það sem er svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:30