Fara í efni
Umræðan

Akureyrarlið í efstu deild í 48. skipti

Þegar flautað verður til leiks á Íslandsmóti karla í fótbolta í dag,  föstudag, á Akureyri lið í efstu deild í 48. skipti á þeim 72 árum sem nú eru liðin frá því deildaskipting var tekin upp á Íslandsmótinu. Bærinn á tvö lið í deildinni í níunda skipti og í fyrsta skipti í 24 ár, eða síðan KA og Þór léku bæði í úrvalsdeildinni árið 2002.

KA tekur á móti Stjörnunni í fyrsta leiknum á Akureyri á sunnudaginn klukkan 17 og á sama tíma verður flautað til leiks hjá Val og Þór á Hlíðarenda í Reykjavík.

Íslandsmóti karla var skipt í tvær deildir í fyrsta sinn fyrir tímabilið 1955. Fimm Reykjavíkurlið og Skagamenn skipuðu efstu deildina, 1. deild, eins og hún hét til ársins 1996, en fjögur landsbyggðarlið voru í 2. deild og eitt þeirra var ÍBA, Íþróttabandalag Akureyrar. ÍBA varð fyrsti sigurvegarinn í 2. deild, eftir sigur á liði Suðurnesja, ÍBS, 2-1 í úrslitaleik, þar sem Baldur Árnason og Ragnar Sigtryggsson skoruðu mörkin, og þreytti því frumraun sína í 1. deildinni árið 1956.

Þeir skoruðu fyrir ÍBA í 1. deild Íslandsmótsins 1956, þegar liðið lék í fyrsta skipti í efstu deild. Öll í mörkin komu í 3:1 sigri á Víkingi. Tryggvi Georgsson, lengst til hægri, skoraði fyrsta mark ÍBA í deildakeppninni, Hreinn Óskarsson, fyrir miðju, gerði annað markið og Jakob Jakobsson, lengst til vinstri, það þriðja.

Fimmtán tímabil hjá ÍBA

ÍBA lék samtals fimmtán tímabil af nítján í 1. deild á árunum 1956 til 1974 og náði þar besta árangri sínum 1966 og 1967 en bæði árin hafnaði Akureyrarliðið í þriðja sæti. Akureyringar fundu af og til á þessum árum þefinn af Íslandsmeistaratitlinum og þóttu stundum sigurstranglegir en vantaði alltaf herslumuninn í þeirri baráttu.

Tryggvi Georgsson skoraði fyrstur Akureyringa í efstu deild þegar hann gerði fyrsta mark ÍBA í sigri á Víkingi, 3-1, þann 29. júlí 1956. Sá leikur fór fram á Melavellinum í Reykjavík eins og nær allir leikir til ársins 1959 þegar tvöföld umferð var tekin upp í deildinni og liðin utan Reykjavíkur hófu að leika á sínum heimavöllum.

Fyrsti leikurinn á Akureyri fór fram 12. júní 1960 þegar ÍBA, sem hafði unnið 2. deildina árið áður, bar sigurorð af Keflvíkingum, 3-1. Steingrímur Björnsson, 19 ára sóknarmaður Akureyrarliðsins, hélt upp á daginn með því að skora öll þrjú mörkin.

Þórsliðið haustið 1976, eftir að það vann sér sæti í efstu deild, tveimur árum eftir að það hóf keppni í 3. deild.

Aftari röð vinstri: Douglas Reynolds þjálfari, Óskar Gunnarsson, Sigtryggur Guðlaugsson, Pétur Sigurðsson, Jón Lárusson, Gunnar Austfjörð, Sigurður Lárusson, Björn Víkingsson, Helgi Örlygsson, Þorbjörn Jensson, Baldvin Harðarson og Þóroddur Hjaltalín, formaður knattspyrnudeildar.

Fremri röð frá vinstri: Hilmar Baldvinsson, Árni Gunnarsson, Einar Sveinbjörnsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Ragnar Þorvaldsson, Magnús Jónatansson, Samúel Jóhannsson, Sævar Jónatansson og Oddur Óskarsson.

Eini stóri titillinn kom 1969

Lið ÍBA vann sinn eina stóra titil þegar það varð bikarmeistari árið 1969, eftir tvo úrslitaleiki gegn Skagamönnum, en á þessum árum fór bikarkeppnin fram eftir að Íslandsmótinu lauk um haustið. Kári Árnason skoraði þar sigurmarkið, 3-2, í framlengdum seinni leiknum sem fram fór 6. desember á glerhálum Melavellinum í Reykjavík.

Eins merkilegt og það er hafði lið ÍBA endað í sjöunda og síðasta sæti 1. deildar þá um haustið en féll samt ekki vegna fjölgunar úr sex liðum í átta sem stóð yfir í tvö ár. Akureyringar sigruðu Breiðablik í aukaleikjum um áframhaldandi sæti í deildinni áður en bikarævintýrið hófst. ÍBA lék í kjölfarið fyrstu og einu Evrópuleiki sína árið 1970, gegn Zürich, sem báðir fóru fram í Sviss.

Lið KA sumarið 1977 þegar það tryggði sér þátttökurétt í 1. deild Íslandsmót sumarið eftir.

Aftari röð frá vinstri: Stefán Gunnlaugsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar, Steinþór Þórarinsson, Eyjólfur Ágústsson, Haraldur Haraldsson, Jóhannes Atlason þjálfari, Ármann Sverrisson, Jóhann Jakobsson, Óskar Ingimundarson, Sverrir Þórisson, Magnús Vestmann Magnússon, Örlygur Ívarsson formaður knattspyrnudeildar og Haraldur Sigurðsson formaður KA.

Fremri röð frá vinstri: Helgi Jónsson, Guðjón Harðarson, Sigbjörn Gunnarsson, Ólafur Haraldsson, Sveinn Ævar Stefánsson, Þormóður Einarsson og Gunnar Blöndal.

KA og Þór frá 1975

ÍBA féll tvisvar úr deildinni eftir þetta, fyrst haustið 1971 og svo aftur haustið 1974, eftir tap í úrslitaleik gegn Víkingi, 3-1. Liðin enduðu þá jöfn að stigum í tveimur neðstu sætunum. Það reyndist síðasta ár sameinaðs liðs bæjarins því KA og Þór hættu samstarfinu og hófu bæði keppni í 3. deild árið 1975.

Það tók Þór aðeins tvö ár og KA þrjú ár að vinna sér sæti í efstu deild á ný en í kjölfarið voru bæði félögin í basli með að halda sér á meðal þeirra bestu. KA féll þrisvar úr efstu deild og Þór tvisvar á árunum 1977 til 1984.

En betri árangur náðist á næsta áratug því KA kom óvænt með Íslandsbikarinn til Akureyrar í fyrsta og eina skiptið árið 1989, eftir dramatískt einvígi við FH um meistaratitilinn í lokaumferðinni þar sem Jón Kristjánsson gulltryggði hann með marki í Keflavík, 2-0, á lokamínútunum.

Þór náði sínum besta árangri árin 1985 og 1992 þegar liðið hafnaði í þriðja sæti og var í bæði skiptin óheppið að vinna sér ekki inn Evrópusæti.

Íslandsmeistarar KA 1989, eftir sigurinn á Keflvíkingum í síðustu umferðinni í Keflavík. Aftari röð frá vinstri: Halldór Kristinsson, Anthony Karl Gregory, Jón Kristjánsson, Steingrímur Birgisson, Erlingur Kristjánsson og Jón Grétar Jónsson – sem halda í sameiningu á Guðjóni Þórðarsyni þjálfara – Stefán Ólafsson, Bjarni Jónsson, Örn Viðar Arnarson, Ægir Dagsson, Jónas Þór Guðmundsson, Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar KA og Sigmundur Þórisson formaður félagsins.

Fremri röð frá vinstri: Árni Þór Freysteinsson, Árni Hermannsson, Halldór Halldórsson, Haukur Bragason, Arnar Bjarnason, Gauti Laxdal og Þorvaldur Örlygsson. Tveir Íslandsmeistaranna eru ekki á myndinni, Arnar Freyr Jónsson og Ormarr Örlygsson.

Akureyrskur fótbolti gekk í gegnum erfiðari tíma frá 1995 til 2001 þegar bæði Þór og KA léku í næstefstu deild en síðan birti til þegar liðin enduðu þar í tveimur efstu deildunum haustið 2001 og léku því bæði í efstu deild árið 2002. En Þór féll jafnharðan og frá þeim tíma hafa liðin ekki mæst í efstu deild þar til nú, 24 árum síðar.

Tíunda árið í röð hjá KA

KA leikur nú sitt tíunda ár í röð í deildinni, sem er besti kafli félagsins frá upphafi. Áður var KA lengst sex ár í deildinni, frá 1987 til 1992. Liðið náði sínum næstbesta árangri árið 2022 þegar það hafnaði í öðru sæti. Fyrsti bikarmeistaratitillinn leit dagsins ljós eftir frækinn sigur á Víkingi, 3-1, árið 2024. KA er nú að hefja sitt 24. tímabil í efstu deild.

Þór er hins vegar kominn í Bestu deildina á ný eftir ellefu ára dvöl í 1. deildinni, sem er lengsta fjarvera félagsins. Þetta verður átjánda tímabil Þórs í efstu deild en þar hefur félagið leikið lengst átta ár í röð, á árunum 1983 til 1990.

Þau átta tímabil sem Akureyri hefur áður átt tvö lið í efstu deild eru 1981, 1984, 1987, 1988, 1989, 1990, 1992 og 2002.

Hermann Gunnarsson gerði 14 mörk í 14 leikjum þegar hann þjálfaði og lék með ÍBA árið 1970 og það markamet leikmanns Akureyrarliðs var ekki slegið fyrr en 2022 að Nökkvi Þeyr Þórisson, til vinstri á litmyndinni, gerði 17 mörk í 20 leikjum. Hallgrímur Mar Steingrímsson, lengst til hægri, gerði 13 mörk í Bestu deildinni í fyrra.

Nökkvi sló markamet Hemma Gunn

Nökkvi Þeyr Þórisson á markamet leikmanns Akureyrarliðs í deildinni en hann skoraði 17 mörk fyrir KA árið 2022 og varð markakóngur deildarinnar. Þar með sló hann 52 ára gamalt met Hermanns Gunnarssonar, hins eina og sanna Hemma Gunn, sem skoraði 14 mörk í 14 leikjum fyrir ÍBA þegar hann var spilandi þjálfari liðsins árið 1970, þá aðeins 23 ára gamall.

Hallgrímur Mar Steingrímsson hjó nærri þeim á síðasta ári, 2025, þegar hann skoraði 13 mörk fyrir KA. Hallgrímur hefur fjórum sinnum verið markahæsti leikmaður KA í deildinni á undanförnum fimm árum og er búinn að jafna Akureyrarmetið í deildinni. Steingrímur Björnsson varð áður markahæsti leikmaður Akureyrarliðs í efstu deild fjögur ár í röð, frá 1960 til 1963.

Bjarni Sveinbjörnsson er sá leikmaður Þórs sem hefur skorað flest mörk á einu tímabili en hann skoraði 11 mörk fyrir liðið, bæði 1992 og 1994.

Frammistaðan og markahæstu menn frá 1956

Svona hefur liðum Akureyrar, ÍBA, KA og Þór, gengið í efstu deild karla frá 1956 til 2025 og þessir hafa verið markahæstu menn Akureyrarliðanna á hverju tímabili fyrir sig:

  • 1956 - ÍBA, 5. sæti af 6 - Tryggvi Georgsson, Hreinn Óskarsson og Jakob Jakobsson 1 mark hver.
  • 1957 - ÍBA, 6. sæti af 6 - Jakob Jakobsson og Baldur Árnason 2 mörk hvor
  • 1960 - ÍBA, 5. sæti af 6 - Steingrímur Björnsson 10 mörk
  • 1961 - ÍBA, 4. sæti af 6 - Steingrímur Björnsson 7 mörk
  • 1962 - ÍBA, 5. sæti af 6 - Steingrímur Björnsson 10 mörk
  • 1963 - ÍBA, 6. sæti af 6 - Steingrímur Björnsson 6 mörk
  • 1965 - ÍBA, 4. sæti af 6 - Skúli Ágústsson 5 mörk
  • 1966 - ÍBA, 3. sæti af 6 - Kári Árnason 7 mörk
  • 1967 - ÍBA, 3. sæti af 6 - Skúli Ágústsson 10 mörk
  • 1968 - ÍBA, 4. sæti af 6 - Kári Árnason 8 mörk

Steingrímur Björnsson, til vinstri, var markahæsti leikmaður ÍBA fjögur ár í röð, 1960 til 1963; gerði 10 mörk bæði 60 og 62. Skúli Ágústsson, til hægri, gerði 10 mörk sumarið 1967.

  • 1969 - ÍBA, 7. sæti af 7 og bikarmeistari - Magnús Jónatansson 4 mörk
  • 1970 - ÍBA, 6. sæti af 8 - Hermann Gunnarsson 14 mörk
  • 1971 - ÍBA, 8. sæti af 8 - Eyjólfur Ágústsson 7 mörk
  • 1973 - ÍBA, 6. sæti af 8 - Sigbjörn Gunnarsson 6 mörk
  • 1974 - ÍBA, 8. sæti af 8 - Gunnar Blöndal 5 mörk
  • 1977 - Þór, 10. sæti af 10 - Jón Lárusson 5 mörk
  • 1978 - KA, 8. sæti af 10 - Sigbjörn Gunnarsson 4 mörk
  • 1979 - KA, 9 sæti af 10 - Óskar Ingimundarson og Gunnar Blöndal 6 mörk hvor
  • 1981 - KA, 7. sæti af 10 - Ásbjörn Björnsson 6 mörk
  • 1981 - Þór, 9. sæti af 10 - Guðjón Guðmundsson 6 mörk
  • 1982 - KA, 10. sæti af 10 - Gunnar Gíslason 5 mörk
  • 1983 - Þór, 4. sæti af 10 - Guðjón Guðmundsson 9 mörk
  • 1984 - Þór, 7. sæti af 10 - Bjarni Sveinbjörnsson 5 mörk
  • 1984 - KA, 10. sæti af 10 - Hafþór Kolbeinsson 5 mörk

Bjarni Sveinbjörnsson hefur skorað mest Þórsara á einu keppnistímabili í efstu deild. Bjarni gerði 11 mörk sumarið 1992 og aftur 1994. Birkir sonur hans hefur aldrei leikið í efstu deild á Íslandi en á hins vegar að baki fleiri landsleiki en nokkur íslenskur karl!

  • 1985 - Þór, 3. sæti af 10 - Halldór Áskelsson 9 mörk
  • 1986 - Þór, 6. sæti af 10 - Hlynur Birgisson og Kristján Kristjánsson 6 mörk hvor
  • 1987 - Þór, 4. sæti af 10 - Halldór Áskelsson 9 mörk
  • 1987 - KA, 6. sæti af 10 - Tryggvi Gunnarsson og Þorvaldur Örlygsson 4 mörk hvor
  • 1988 - KA, 4. sæti af 10 - Þorvaldur Örlygsson 9 mörk
  • 1988 - Þór, 6. sæti af 10 - Halldór Áskelsson 7 mörk
  • 1989 - KA, Íslandsmeistari - Antony Karl Gregory 8 mörk
  • 1989 - Þór, 7. sæti af 10 - Júlíus Tryggvason 5 mörk
  • 1990 - KA, 8. sæti af 10 - Kjartan Einarsson 7 mörk
  • 1990 - Þór, 9. sæti af 10 - Árni Þór Árnason, Bjarni Sveinbjörnsson og Lúkas Kostic 3 mörk hver
  • 1991 - KA, 6. sæti af 10 - Pavel Vandas 7 mörk
  • 1992 - Þór, 3. sæti af 10 - Bjarni Sveinbjörnsson 11 mörk
  • 1992 - KA, 10. sæti af 10 - Gunnar Már Másson 7 mörk
  • 1993 - Þór, 7. sæti af 10 - Árni Þór Árnason 4 mörk
  • 1994 - Þór, 9. sæti af 10 - Bjarni Sveinbjörnsson 11 mörk
  • 2002 - KA, 4. sæti af 10 - Hreinn Hringsson 6 mörk

Chukwudi Chijindu gerði 10 mörk fyrir Þór 2013 – Jóhann Þórhallsson, 10 mörk fyrir Þór 2002 – Elfar Árni Aðalsteinsson, 13 mörk fyrir KA 2019 – Ásgeir Sigurgeirsson 10 mörk fyrir KA 2018. Myndir: Skapti Hallgrímsson

  • 2002 - Þór, 10. sæti af 10 - Jóhann Þórhallsson 10 mörk
  • 2003 - KA, 8. sæti af 10 - Steinar Tenden 9 mörk
  • 2004 - KA, 10. sæti af 10 - Atli Sveinn Þórarinsson 4 mörk
  • 2011 - Þór, 11. sæti af 12 - Sveinn Elías Jónsson 8 mörk
  • 2013 - Þór, 8. sæti af 12 - Chukwudi Chijindu 10 mörk
  • 2014 - Þór, 12. sæti af 12 - Jóhann Helgi Hannesson 7 mörk
  • 2017 - KA, 7. sæti af 12 - Elfar Árni Aðalsteinsson og Emil Lyng 9 mörk hvor
  • 2018 - KA, 7. sæti af 12 - Ásgeir Sigurgeirsson 10 mörk
  • 2019 - KA, 5. sæti af 12 - Elfar Árni Aðalsteinsson 13 mörk
  • 2020 - KA, 7. sæti af 12 - Guðmundur Steinn Hafsteinsson 6 mörk
  • 2021 - KA, 4. sæti af 12 - Hallgrímur Mar Steingrímsson 11 mörk
  • 2022 - KA, 2. sæti af 12 - Nökkvi Þeyr Þórisson 17 mörk
  • 2023 - KA, 7. sæti af 12 - Hallgrímur Mar Steingrímsson 7 mörk
  • 2024 - KA, 7. sæti af 12 og bikarmeistari - Hallgrímur Mar Steingrímsson 9 mörk
  • 2025 - KA, 7. sæti af 12 - Hallgrímur Mar Steingrímsson 13 mörk

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35

Hvað er það sem er svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:30

Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar

Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:15

Bílastæði við Sunnuhlíð

Heimir Örn Árnason og Arna Rut Gunnarsdóttir skrifa
09. apríl 2026 | kl. 09:10

Málefni eldra fólks

Björn Snæbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:00