„Finnst við vera með betri hóp en í fyrra“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, hefur engan áhuga á að enda í 7. sætinu í efstu deild karla í knattspyrnu enn eitt árið. Hann segist setja stefnuna á topp 6 í deildinni og að fara alla leið í bikarkeppninni.
KA-liðið hefur endað í 7. sæti deildarinnar þrjú ár í röð og sérfræðingar og spámenn hafa margir hverjir spáð KA áframhaldandi setu þar í ár. Haddi segir ljóst að KA ætli sér í efri hluta deildarinnar. „Við viljum stefna á topp 6 og ef það tekst þá metum við stöðuna. Hvort það er langt í 4. sætið og hvort 4. sætið verður Evrópusæti eða ekki. En fyrsta markmiðið er að komast í topp 6, vorum markatölu frá því í fyrra,“ segir Haddi og greinilegt að Evrópukeppnin freistar hans. „Og svo er það bikarinn, við viljum fara alla leið í bikarnum. Höfum tvisvar farið í úrslitaleikinn, núna er búin ein umferð og við fengum fínasta drátt í næstu umferð. Ef við gerum vel þar þá er allt í einu orðin stutt leið,“ segir Haddi og vísar þar til Evrópusætis sem fylgir bikarmeistaratitlinum.
Eru með tak á Víkingum
Hann tekur undir með spámönnum sem flestir eða allir spá Víkingum Íslandsmeistaratitlinum. Þó að KR, Breiðablik, Stjarnan og Valur séu með sterk lið þá segir Haddi spána raunhæfa. „Mér finnst Víkingur vera með besta og heilsteyptasta liðið og með rosalega breiðan hóp. Við spiluðum reyndar við þá í Boganum um daginn, unnum 2:0 og held að það hafi verið fyrsta tap þeirra í 22 leiki. Þeir eru ógnarsterkir en við viljum meina að við séum með smá tak á þeim,“ segir Haddi. „En ég held að þeir muni vinna þetta mót og vinna það örugglega,“ bætir hann við. KA fær Víking einmitt í heimsókn næstkomandi föstudag í 2. umferð deildarinnar og þar vilja Víkingar eflaust kvitta fyrir tapið í Boganum.
Síðustu ár hefur það loðað við KA-liðið að byrja Íslandsmótið illa. Haddi segir ýmsar skýringar á því, meðal annars hafa þeir fengið leikmenn seinna inn í hópinn en liðin fyrir sunnan, en þeir stefni að sjálfsögðu að því að byrja betur í ár.„ Ég lít meira á þetta jákvætt, að við höfum í raun náð að vaxa inn í mótið og orðið betri og betri eftir því sem líður á. Núna fengum við nokkra leikmenn fyrr, fengum nokkra útlendinga núna í janúar. En við munum vaxa inn í mótið og frammistaðan hjá KA verður vonandi betri í leik 10 en leikjum 1 og 2,“ segir hann. „En við fáum alvöru prógram í upphafi, tvö af þeim þremur liðum sem hefur verið spáð efstu sætunum þannig að það er alveg áskorun fyrir okkur. En ég reikna ekki með að við munum spila fullkominn fótbolta og allt verði fullkomið,“ segir Haddi en KA fær Stjörnuna í heimsókn í dag í 1. umferðinni áður en Víkingar mæta síðan í næstu viku.
Aðspurður um hópinn og hvort allir séu heilir fyrir fyrsta leik segir Haddi að staðan á hópnum sé góð, þó að ekki séu allir alveg heilir. „Það var mjög góð stemmning á leikmannakynningu á föstudaginn, mér finnst vera að koma smá meðvindur með okkur og mér finnst við vera með betri hóp en í fyrra,“ segir Haddi.
Staðan á varnarlínunni er fín
Sérfræðingar og spámenn sem hafa rýnt í KA-liðið telja sumir hverjir að ekki hafi náðst að fylla í skörðin í vörninni frá síðasta tímabili og Haddi er spurður hvort þeir séu að svipast um eftir styrkingu. „Við erum ekki að fara að taka inn varnarmann, við treystum þeim sem fyrir eru. Birgir Baldvinsson var meiddur í byrjun móts í fyrra, hann er núna klár. Breki Hólm kom frá ÍR og við erum með Kára og Guðjón klára. Ívar Örn er farinn en við erum með flottan ungan strák sem er búinn að standa sig vel og hann þarf tíma eins og allir aðrir,“ segir Haddi og á þar við Markús Mána Pétursson, tæplega tvítugan pilt sem hefur fengið tækifæri í vörninni og mun fá stærra hlutverk í sumar ef að líkum lætur. „Hann er bara á sama stað og Ívar var og svo vaxa menn í hlutverkið. Við höfum verið gagnrýndir fyrir að spila ekki á ungum gaurum og þegar við gerum það þá erum við gagnrýndir fyrir að kaupa ekki menn,“ segir Haddi og glottir gegnum símann. „Að mínu mati er Hans Viktor einn besti hafsent á Íslandi og hann fær ungan kraftmikinn strák (Markús) við hliðina á sér í einhverja leiki og staðan á varnarlínunni er bara fín,“ segir Hallgrímur Jónasson að lokum.
Mannúðarfélög
Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði
Hvað er það sem er svona óljóst?
Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar