Stjarnan lagði KA í köflóttum leik
KA tók á móti Stjörnunni í dag í 1. umferð efstu deildar karla, Bestu deildinni, og þurfti að sætta sig við 3:2 tap í fjörugum leik. Gestirnir voru meira með boltann lengst af en sköpuðu sér ekki mörg færi. Hins vegar voru þeir fljótir að refsa heimamönnum fyrir varnarmistök. Mögulega hefði leikurinn þróast á annan hátt ef mark sem KA skoraði snemma leiks hefði ekki verið dæmt af vegna rangstöðu en sá dómur þótti verulega vafasamur.
Lið KA kom ekki alveg nógu einbeitt til leiks og fyrri hluta fyrri hálfleiks réðu Stjörnumenn gangi mála að mestu. Stjarnan náði forystunni strax á 4. mínútu þegar miðjumenn KA létu boltann fara framhjá sér á miðsvæðinu, Stjarnan hirti hann og Emil Atlason fékk stungusendingu milli varnarmann KA sem voru allt of langt frá honum. Emil skoraði af öryggi framhjá Steinþóri í markinu.

Bakvörðurinn sókndjarfi, Birgir Baldvinsson, geysist upp vinstri kantinn. Hann gerði fyrra mark KA í leiknum með skalla eftir fyrirgjöf hins bakvarðar KA, Guðjóns Ernis Hrafnkelssonar. Mynd: Ármann Hinrik
Vafasamur rangstöðudómur
Nokkrum mínútum síðar töldu KA-menn sig hafa jafnað leikinn. Jakob Héðinn átti góða fyrirgjöf fyrir markið, Guðjón Ernir kom boltanum inn á markteig og Samuel Kroon setti hann inn fyrir línuna. Aðstoðardómarinn flaggaði hins vegar rangstöðu og við fyrstu sýn virtist sú ákvörðun í meira lagi vafasöm.
Þess í stað jók Stjarnan forskotið örfáum mínútum síðar þegar Birnir Snær sendi fyrir markið frá hægri og Örvar Eggertsson var aleinn í heiminum á fjærstöng og gat ekki annað en skorað. Staðan orðin 2:0 og innan við korter liðið af leiknum.
Stjarnan hélt áfram að ráða gangi leiksins næstu mínútur en smám saman vaknaði KA-liðið til lífsins og fór að sýna einhverja mótspyrnu. Það bar árangur eftir rúmlega hálftíma leik þegar hægri bakvörðurinn Guðjón Ernir sendi góða sendingu inn á markteig, þar sem Birgir Baldvinsson vinstri bakvörður var staddur og skoraði með góðum skalla. Áfram héldu KA-menn að auka þrýstinginn á Stjörnuna og fengu m.a. fjórar hornspyrnur í röð á lokamínútu hálfleiksins, áður en flautað var til leikhlés.
JAKOB HÉÐINN SKORAR Í FYRSTA LEIKNUM
Húsvíkingurinn ungi, Jakob Héðinn Róbertsson, var óvænt í byrjunarliði KA í dag og skoraði sitt fyrsta mark í frumraun sinni í efstu deild. Hann fékk góða sendingu frá Jeppe Pedersen, hljóp af sér varnarmenn Stjörnunnar og renndi knettinum í netið framhjá Árna í Stjörnumarkinu.



Myndir: Ármann Hinrik
KA betra liðið í seinni hálfleik
Stjarnan jók forskot sitt að nýju á 57. mínútu þegar Emil Atlason skoraði öðru sinni. Markús Máni stóð einhvern veginn illa og í litlu jafnvægi þegar sending barst inn í teiginn, náði ekki valdi á boltanum sem hrökk fyrir fætur Emils Atlasonar. Emil var ekki í vandræðum með að klára málið og koma Stjörnunni í 3:1.
Markús Máni bætti fyrir þessi mistök örskömmu síðar þegar vann glæsilega tæklingu við vítateig KA og kom boltanum strax á Jeppe Pedersen. Jeppe sendi fram á Jakob Héðin sem hljóp af sér varnarmenn Stjörnunnar og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í sínum fyrsta leik. Staðan orðin 3:2, hálftími til leiksloka, og allt gat ennþá gerst.

Sveinn Margeir Hauksson kom inn á sem varamaður í dag og er óðum að braggast. Hann verður KA-liðinu mikill styrkur þegar hann er kominn í sitt besta form. Mynd: Ármann Hinrik
KA fékk síðan verulega gott tækifæri til að jafna þegar Samuel Kroon setti boltann yfir markið af markteig, eftir góða rispu Sveins Margeirs. Boltinn hrökk óvænt til Samuels, sem þurfti að teygja sig í hann og náði ekki að stýra honum á rammann. Í blálokin átti Hallgrímur Mar síðan skot sem virtist vera á leiðinni upp í markhornið en boltinn sigldi rétt framhjá.
Þrátt fyrir mikla baráttu það sem eftir lifði leiks urðu mörkin ekki fleiri og Stjarnan fór suður yfir heiðar með öll stigin.
Sóknarsinnaðir bakverðir KA og Jakob Héðinn er með markanef
Talsverðar breytingar hafa orðið á liði KA síðan í fyrra og nýju mennirnir Jeppe Pedersen, Danijel Dejan Djuric og Samuel Kroon voru allir í byrjunarliðinu í dag. Þá kom Húsvíkingurinn Jakob Héðinn Róbertsson inn í byrjunarliðið á síðustu stundu, eftir að nafni hans Árnason meiddist í upphitun. Sveinn Margeir Hauksson og Diego Montiel byrjuðu á bekknum en komu báðir inn á. Montiel fékk reyndar ekki nema svosem hálfa mínútu inni á vellinum, áður en hann þurfti að yfirgefa hann vegna meiðsla. Fékk hnykk á hnéð og virtist þjáður. Hinn ungi Markús Máni Pétursson var í miðvarðarstöðunni með Hans Viktor Guðmundssyni og þrátt fyrir að hafa gert mistök sem kostuðu mark átti hann ágætan leik. Var góður á boltann og skilaði honum vel frá sér. Þeir Hans þurfa smá tíma til að slípa sig saman og þá mun vörnin þéttast.

Svíinn Diego Montiel staldraði stutt við innan vallar í dag. Hann kom inn á eftir 77 mínútur en þurfti að fara út af vegna meiðsla innan við mínútu síðar.
Byrjunarlið KA var þannig skipað að Steinþór Már Auðunsson var í markinu, Hans Viktor og Markús Máni miðverðir og þeir Guðjón Ernir Hrafnkelsson og Birgir Baldvinsson í bakvarðarstöðunum. Rodri var fyrir framan vörnina að venju og Jeppe Pedersen, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Samuel Kroon og Danijel Dejan Djuric á miðjunni. Jakob Héðinn Róbertsson var fremsti maður. Hans Viktor bar fyrirliðabandið.
Bakverðir KA tóku virkan þátt í sóknarleiknum og Birgir var einn sóknarsinnaðasti leikmaður vallarins. Hann átti góðan leik í dag og Jeppe og Hallgrímur Mar sömuleiðis á miðjunni. Jakob Héðinn var sprækur í fremstu víglínu og veit greinilega í hvaða átt markið er. Danijel Dejan Djuric á eftir að komast í betri takt við liðið en sýndi af og til góða takta.
Slæm byrjun í leiknum gerði útslagið
KA-liðið hefur haft þann leiða ósið undanfarin ár að byrja Íslandsmótið illa. Framan af fyrri hálfleik í dag leit út fyrir að liðið væri alls ekki tilbúið en það sýndi mikinn karakter með því að koma sér inn í leikinn eftir slæma byrjun. Markús Máni þarf að fylla í ansi stóra skó Ívars Arnar í vörninni og á köflum í dag var vörnin ekki sannfærandi. Það var samt ekki við hann að sakast, varnarmennirnir eiga eftir að læra betur hver inn á annan og Stjarnan nýtti sér nokkur augnablik aðgæsluleysis til að refsa heimaliðinu. Svo þegar KA fór að þrýsta á Stjörnuna vantaði stundum bara herslumuninn til að ná alveg í gegn. KA hefði auðveldlega náð stigi eða stigum úr leiknum, ef ekki hefði verið fyrir fyrsta hálftímann þegar Stjarnan var mikið ákveðnara liðið og nýtti sér það.
Mannúðarfélög
Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði
Hvað er það sem er svona óljóst?
Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar