Fara í efni
Umræðan

Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat

Maturinn sem börn fá í leik- og grunnskólum er eitt mikilvægasta lýðheilsumál sveitarfélaga. Mataræði á fyrstu árum hefur bein áhrif á heilaþroska, efnaskipti og heilsu síðar á lífsleiðinni.
 
Regluleg neysla gjörunninnar fæðu mótar bragðskyn barna og venur þau við gervibragðefni og íblöndunarefni sem eru hönnuð til að auka bragð og hvetja til meiri neyslu. Þegar börn verja stórum hluta dagsins í skólum og leikskólum verða þær matarvenjur sem þar myndast mótandi fyrir heilsu þeirra til framtíðar.
 
Rannsóknir sýna að næringarríkt, lítið unnið fæði styður bæði við andlega heilsu og einbeitingu. Á sama tíma og þekking á mikilvægi næringar hefur aldrei verið meiri, glíma um 7,5% barna á Íslandi við offitu eða um fimm þúsund börn. Þessi þróun kallar á skýr viðbrögð og sveitarfélög gegna þar lykilhlutverki.
 
Í leik- og grunnskólum Akureyrar er vilji og metnaður til að bjóða upp á góðar og næringarríkar máltíðir og margt er vel gert. Samt er ljóst að gjörunnin matvæli eru enn hluti af matseðlum, oft dulbúin sem hollari kostir eða einfaldar lausnir, svo sem vorrúllur, kjötbúðingur og tilbúin grænmetisbuff. Einnig má nefna dæmi eins og tilbúið samlokubrauð í stað brauðs bakaðs á staðnum eða pakkasúpur í stað súpa eldaðra frá grunni. Það er svigrúm til að gera betur.
 
L-listinn vill setja í forgang að matur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar byggi á ferskum, næringarríkum hráefnum, eftir því sem kostur er úr nærumhverfi Eyjafjarðar. Gjörunnin matvæli eiga ekki að vera reglulegur hluti af mataræði barna. Við þurfum markvisst að draga úr notkun þeirra og byggja upp matarumhverfi sem styður við heilsu, þroska og framtíð barnanna okkar.
 
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir er í 2. sæti L-listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri 16. maí og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir í  6. sæti

Eldri borgarar – gullkista Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson og Svava Steingrímsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 08:45

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35

Hvað er það sem er svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:30

Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar

Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:15