Fara í efni
Umræðan

Hvað er það sem er svona óljóst?

Málflutningur forystumanna Viðreisnar um Evrópumálin undanfarna mánuði hefur einkum snúizt um það að einhver gríðarleg óvissi ríkti um það hvað innganga í Evrópusambandsins hefði í för með sér. Ekkert væri hægt að segja um það nema samningur í þeim efnum lægi fyrir. Sömu aðilar hafa þó fyrir löngu gert upp hug sinn í þeim efnum og vilja ólmir í sambandið.

Hins vegar er ekki nóg með það. Síðast haust fór fram landsþing Viðreisnar þar sem meðal annars var samþykkt stefna flokksins í utanríkismálum. Þar segir: „Ísland á að auka enn frekar þátttöku sína í Evrópusamstarfinu og gerast fullgildur aðili að Evrópusambandinu.“ Enginn fyrirvari var settur í þeim efnum um ásættanlegan samning eða nokkuð slíkt.

Með öðrum orðum er fyrrnefndur málflutningur ljóslega innihaldslaus með öllu eins og raunar var vitað fyrir. Tilgangurinn með honum er einungis að þyrla upp ryki til þess að reyna að fá fólk til þess að segja já í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði við því að stefnt verði á ný að inngöngu í Evrópusambandið á þeim forsendum að eitthvað sé gríðarlega óljóst í þeim efnum.

Hins vegar hefur ekkert gengið að fá Viðreisn eða aðra til að útskýra hvað sé svona óljóst. Dæmin sem þó hafa verið nefnd yrðu annað hvort ekki í mögulegum samningi, eins og verðbólga og vextir, eða eru þegar fyrir hendi eins og símareiki sem formaður flokksins nefndi fyrr á árinu sem ætlaðan ávinning. Eina sem er óljóst í þeim efnum er hvað sé svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur, alþjóðastjórnmálafræðingur og Norðlendingur að ætt og uppruna

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00

Tökum næstu skref

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
16. maí 2026 | kl. 09:45

Kveðja frá oddvita Viðreisnar

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
16. maí 2026 | kl. 09:30

Allt að gerast!

Þórhallur Jónsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 19:45

Leikskólar fyrir öll: ekki bara þau sem hafa svigrúm

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir og Stefán Oddur Hrafnsson skrifa
15. maí 2026 | kl. 17:30