Fara í efni
Umræðan

Blak: KA-konur lögðu Völsung í oddaleiknum

Siðast stigið í höfn og sigurinn tryggður. Auður Pétursdóttir smassar yfir hávörn Völsungs. Myndir: Skapti Hallgrímsson.

KA tryggði sér sæti í úrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki með því að leggja Völsung í oddaleik í KA-heimilinu í gærkvöld. Lokatölur urðu 3:1 KA í vil.

Liðin höfðu unnið sinn leikinn hvort og því var allt undir í þessum leik. KA byrjaði betur og vann fyrstu hrinu örugglega, 25:15 en gestirnir stjórnuðu næstu hrinu frá upphafi og jöfnuðu leikinn með 25:19 sigri. Dæmið snerist síðan við í þriðju hrinu og KA vann mjög örugglega, 25:13.

Heimaliðið þurfti því aðeins að vinna eina hrinu til viðbótar til að tryggja sér sæti í úrslitaviðureigninni og það tókst með 25:17 sigri í fjórðu hrinu og leikurinn vannst 3:1.

Auður Pétursdóttir (16) fagnar eftir að hafa smassað og skorað síðasta stigið, 25:17, í fjórðu hrinu.

KA og HK berjast um titilinn

KA mætir HK í úrslitunum um titilinn en HK vann sína viðureign gegn Aftureldingu með sigri í oddaleik í gærkvöld. HK hefur þegar hrifsað deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn úr höndum KA og næsta víst að KA-stelpurnar hafa engan áhuga á að sjá á eftir Íslandsmeistaratitlinum í Kópavoginn til viðbótar.

Fyrsta viðureign liðanna fer fram næstkomandi þriðjudag á heimavelli HK og það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn.

Sigurdansinn stiginn eftir að sætið í úrslitaviðureigninni var tryggt.

Húsnæðismál 60 ára+ – íbúaþróun á Akureyri 2026-2036

Benedikt Sigurðarson skrifar
14. maí 2026 | kl. 06:00

Félagsleg tengsl eru grunnur að velferð

Íunn Eir Gunnarsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 15:00

Gott að eldast á Akureyri

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 13:15

Velkominn í Disneyland

Kjartan Benediktsson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:45

Okkar skilaboð til fatlaðra íbúa og aðstandenda

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
13. maí 2026 | kl. 12:30

Hreinn bær, fagur bær

Þórhallur Harðarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:15