Fara í efni
Umræðan

KA vann á útivelli og knúði fram oddaleik

Gísli Marteinn Baldvinsson, í bláu treyjunni, og Mateusz Jeleniewski gátu fagnað í Mosfellsbæ í kvöld. Mynd af Facebook síðu KA

Karlalið KA í blaki sigraði Aftureldingu 3:2 í Mosfellsbæ í kvöld, þriðjudagskvöld, í hörkuleik og knúði þar með fram oddaleik um sæti í úrslitum Íslandsmótsins. Afturelding vann þegar liðin mættust í KA-heimilinu í síðustu viku þannig að í kvöld var að duga eða drepast fyrir KA-strákana því það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum fer lokaúrslitin.

KA vann fyrstu hrinuna 25:21 og næstu 25:19 áður en heimamenn sneru blaðinu og unnu tvær í röð, 25:17 og 25:18. KA-menn bitu hins vegar í skjaldarrendur og unnu fimmtu lotuna 15:10 og liðin mætast því þriðja og síðasta sinni í KA-heimilinu á föstudagskvöldið kemur.

Þróttur í Reykjavík leikur til úrslita í ár; Þróttarar unnu lið Hamars 3:2 í Hveragerði í síðustu viku og fögnuðu aftur sigri, 3:0 (25:18, 25:18, 25:23) í Laugardalshöllinni í kvöld.

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00