Fara í efni
Umræðan

Blak: Oddaleik þarf hjá KA og Völsungi

Völsungur lagði KA í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins og liðin þurfa að mætast í oddaleik á Akureyri á fimmtudag. Mynd: Facebook-síða Völsungs.

Völsungur bar sigurorð af KA í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni efstu deildar kvenna í blaki á Húsavík í dag. Heimakonur unnu þrjár hrinur gegn einni en KA vann fyrsta leik liðanna með sama mun og liðin þurfa því að leika oddaleik í KA-heimilinu næstkomandi fimmtudag um það hvort liðið kemst í úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilinn.

Leikurinn í dag var mjög jafn nánast allan tímann og flestar hrinurnar æsispennandi. KA náði að landa 25:23 sigri í fyrstu hrinu en heimastúlkur jöfnuðu með 25:21 sigri í jafnri annarri hrinu. Þær tóku síðan 2:1 forystu með 25:23 sigri í hnífjafnri þriðju hrinu og tryggðu sér sigurinn með því að vinna fjórðu hrinuna 25:20.

Úrslitin þýða að liðin þurfa að leiða saman hesta sína í einum leik til viðbótar og sigurvegarinn í oddaleiknum mætir annaðhvort Aftureldingu eða HK í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn en oddaleik þarf einnig til að skera úr um sigurvegarann í viðureign þeirra liða. Oddaleikirnir fara báðir fram næstkomandi fimmtudag.

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00