Fara í efni
Umræðan

Þór spáð neðsta sæti en að KA lendi enn í 7. sæti

Sigfús Fannar Gunnarsson framherji Þórs og Markús Máni Pétursson, miðvörðurinn ungi í KA, í úrsiltaleik liðanna í Kjarnafæðismótinu um daginn. Mynd: Ármann Hinrik

Í gær var opinberuð spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í efstu deild karla í knattspyrnu um það hvernig gengi liðanna yrði í sumar. Í spánni er gert ráð fyrir að KA muni sitja áfram sem fastast í 7. sæti deildarinnar, líkt og hlutskipti liðsins hefur verið sl. 3 ár, en Þórsurum er spáð neðsta sætinu. Samkvæmt spánni mun Víkingur verja Íslandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra.

Þórsarar eru vissulega nýliðar í deildinni en þetta er fyrsta spáin fyrir mótið sem gerir ráð fyrir að þeir falli. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, sagði í viðtali við fotbolti.net í gær að spáin hefði komið honum á óvart en var ekkert ósáttur. „Það kom svolítið á óvart, en ég er vanur þessu og ég held að það eina sem þetta geti gert er að henda einhverju bensíni á klúbbinn,“ sagði Siggi í viðtalinu. Hann segir að það leggist vel í sig að mæta Val á útivelli í fyrsta leik tímabilsins. „Það verður mikið test fyrir okkur sem nýliða og liði sem spáð er neðsta sæti að fara og keppa við lið sem ætlar sér titilinn, á útivelli í fyrsta leik. Það verður mjög spennandi og við þurfum að vera alveg 100% í þeim leik,“ sagði Siggi ennfremur og sagðist ennfremur vera mjög sáttur við leikmannahópinn og Þórsarar séu ekki að leita að frekari liðsstyrk.

Samkvæmt áðurnefndri spá verður þetta lokastaðan í efstu deild karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, árið 2026:

1. Víkingur
2. Breiðablik
3. Stjarnan
4. KR
5. ÍA
6. Valur
7. KA
8. Fram
9. FH
10. ÍBV
11. Keflavík
12. Þór

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00