Fara í efni
Umræðan

Bjóða hraðnámskeið í íslensku í sumarbyrjun

Íslenska sem annað mál hefur verið kennt sem staðarnám og í gegnum netið hjá SÍMEY. Í sumarbyrjun verður boðið upp á viku hraðnámskeið sem nýst getur t.d. fólki sem er að flytja á svæðið vegna vinnu í ferðaþjónustubransanum í sumar. Mynd: Unsplash/Brooke Cagle

Hraðnámskeið í íslensku sem annað mál verður í boði í byrjun júní hjá SÍMEY.  Um  tilraunaverkefni er að ræða en námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir fólk af erlendum uppruna sem er að flytja norður á vordögum. 

Með þessu móti getur þetta fólk strax sótt grunnnámskeið í íslensku sem annað mál í stað þess að bíða til haustsins eftir því að ný önn hefjist. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu SÍMEY verður farið yfir námsefnið á sjö kennsludögum og verður kennt í sex tíma á dag, þrjá fyrir hádegi og þrjá eftir hádegi.

Vel látið af íslenskukennslunni

Alls hafa  10 námskeið í íslenska sem annað mál, verið kennd á þessari önn í SÍMEY. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verða námskeiðin í annarlok um 20 talsins en námskeiðin hafa bæði verið kennd sem staðarnám en einnig á vefnum. Íslenskukennslan er byggð upp í stigum eða þrepum. Námskeið 1 er grunnnámskeið og síðan koll af kolli upp í stig 5.

Í síðustu kennslustund hvers námskeiðs eru nemendur beðnir um að meta námið, bæði námsefnið, kennsluna og frammistöðu kennaranna. Niðurstöður sýna að útkoman er afgerandi jákvæð hvað varðar námskeiðin á þessarri vorönn.  Ríflega sjö af hverjum tíu þátttakendum meta kunnáttu sína miklu betri að námskeiðinu loknu og fjórðungur þátttakenda metur kunnáttuna nokkru betri. Kennsluhættir, samskipti við nemendur og undirbúningur kennara fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá 94-97% nemenda.

Íslenskunámskeið 5 var í fyrsta skipti kennt í SÍMEY núna á vorönn. Þrettán sóttu námskeiðið. Mynd: SÍMEY

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00