Akureyri – Miklu meira en bara fallegur bær
Þó ég teljist enn tiltölulega nýr íbúi á Akureyri þá hef ég rekið verslun hér síðustu fimm ár og hef því fengið að kynnast bænum á ólíkan hátt. Það er samt eitthvað við það að hafa verið frambjóðandi í þessum sveitarstjórnarkosningum sem hefur opnað augun mín enn frekar fyrir því sem hér er til staðar.
Akureyri er ekki bara fallegur bær. Hér er lifandi samfélag, öflug menning, fjölbreytt atvinnulíf og náttúra sem flæðir í og um bæinn. Það sem stendur þó upp úr er fólkið, tengslin sem myndast og hlýjan sem situr eftir.
Mér hefur nefnilega verið tekið ótrúlega vel og miklu betur en ég þorði að vona. Að finna að maður sé velkominn, að maður tilheyri, það er hreint ekki sjálfgefið. Það er samt nákvæmlega sú upplifun sem ég hef fengið hér og það er fjársjóður sem ekki er hægt að mæla í krónum eða tölum en skiptir sköpum fyrir það hvort fólk velur að gera þetta samfélag að sínu og setjast hér að.
Í umræðu um byggðaþróun er svo oft talað um störf, húsnæði og innviði og allt eru þetta mikilvæg atriði en það sem ræður því hvort fólk verður hér áfram er svo margt annað: samfélag sem tekur á móti manni, menning sem nærir og umhverfi sem skapar raunveruleg lífsgæði.
Það er hér sem Akureyri hefur sérstöðu og það er hér sem við megum ekki missa fókusinn.
Ef við viljum halda áfram á þessari braut þurfum við að leggja markvisst rækt við menninguna og mannlífið. Menningin er ekki bara aukaatriði. Hún er það sem fyllir bæinn af lífi, skapar stemningu í miðbænum, tengir ólíkt fólk saman og breytir Akureyri úr stað í samfélag sem fólk sækir í.
Það þarf svo sannarlega að styðja við listafólk og viðburðahald og allt hitt fólkið í grasrótinni sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi. Við þurfum að tryggja að rými fyrir menningu og samveru séu til staðar og að þau séu opin og aðgengileg öllum. Aðgengi er þáttttaka og þátttaka er grunnforsenda lifandi samfélags.
Á sama tíma þurfum við að vanda okkur í uppbyggingu. Vöxtur er mikilvægur en hann má ekki ganga á það sem gerir bæinn okkar einstakan. Við þurfum að byggja, já, en byggjum rétt, með samfélagið í huga, þannig að mannlífið styrkist frekar en veikist, og markmið um fólk frekar en gróða.
Akureyri hefur alla burði til að vera framúrskarandi fyrirmynd þegar kemur að lífsgæðum, menningu og sterkum samfélögum. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það krefst þess að við veljum það, aftur og aftur, og tökum meðvituð skref í rétta átt.
Því það er einmitt þetta sem fær fólk til að flytja í samfélagið okkar.
Og það sem fær fólk til að vilja vera hér áfram.
Sigtryggur Ellertsson skipar 4. sæti lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í maí.
Að verða Akureyringur
Þarf kosningaskrifstofu til að eiga samtal?
Þarfir eldri borgara í Akureyrarbæ í forgang
Börn eiga rétt á því sem virkar