Vilja Hrísalund 1-5 sem blandaða byggð
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis meðfram Þingvallastræti sem nær frá íþróttasvæði KA vestur að Skógarlundi þannig að svæðið verði skilgreint sem miðsvæði*. Upphaf málsins tengist sölu á húseignum Brauðgerðar Kristjáns Jónssonar að Hrísalundi 3 og áformum um byggingu íbúðablokkar með verslun og þjónustu á jarðhæð á þeirri lóð.
Hugmynd Hrísalundar ehf., samkvæmt vinnslutillögu sem skipulagsráð fjallaði um í mars, gerir ráð fyrir sex hæða blokk með kvöð um verslun og þjónustu á jarðhæð, og samtals 29 íbúðum á hæðum 2-6. Umsókn Ingólfs Freys Guðmundssonar fyrir hönd Hrísalundar ehf. gekk út á breytingu á aðalskipulagi sem nær til lóðarinnar Hrísalundar 3, en skipulagsráð, um leið og það tók jákvætt í erindið, taldi ástæðu til að horfa til stærra svæðis sem næði einnig til lóðanna Hrísalundar 1a, 1b og 5, eða svæðisins milli Hrísalundar og Þingvallastrætis, frá íþróttasvæði KA vestur að Skógarlundi.
Í skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi sem unnið var fyrir Akureyrarbæ var miðað við svæðið lengra til vesturs og innihélt einnig Viðjulund 2a og 2b (sjá mynd), en sá hluti er ekki tekinn með í afgreiðslu skipulagsráðs heldur aðeins lóðirnar 1, 3 og 5 við Hrísalund, frá íþróttasvæði KA að Skógarlundi, eins og áður sagði.

Loftmynd sem sýnir staðhætti, gul brotin lína sýnir það svæði sem sett er fram í skipulagslýsingu sem unnin var fyrir Akureyrarbæ, en í afgreiðslu skipulagsráðs er aðeins miðað við svæðið að rauðu línunni, það er að Skógarlundi.
Fjallað var um upphaflegu umsóknina og hugmyndir Hrísalundar ehf. í frétt á akureyri.net 25. mars:
* Miðsvæði í skipulagi er skilgreint svo í skipulagsreglugerð: „Svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjónar heilu landsvæði, þéttbýlisstað eða fleiri en einu bæjarhverfi, svo sem verslanir, skrifstofur, þjónustustofnanir, hótel, veitinga- og gistihús, menningarstofnanir og önnur hreinleg atvinnustarfsemi sem talin er samræmast yfirbragði og eðli starfsemi miðsvæðis.“
Það er aldrei of seint að hreyfast betur
Fjandafæla, sokkapör og rósakrans
Við elskum þessar mellur
„Lucy, hún er löngu dauð!“