Fara í efni
Pistlar

Heilsuvernd stefnir að Borgarmóa 1 og 2

Staðsetning lóðanna sem um ræðir í Móahverfinu. Skjáskot af Map.is/akureyri. Innfellda myndin er skjáskot úr minnisblaði skipulagssviðs.

Unnið er að því á vegum Akureyrarbæjar að Heilsuvernd fái lóð við Borgarmóa úthlutað án auglýsingar til uppbyggingar á heilbrigðisþjónustu við eldri borgara, þar á meðal fyrir tímabundna dvöl, endurhæfingu og leiguíbúðir. Bæjarráð hefur falið sviðsstjóra skipulagssviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram. Fulltrúar V-lista í bæjarráði og skipulagsráði setja spurningamerki við afgreiðslu þess hluta málsins sem snýr að leiguíbúðum.

Forsaga málsins er að Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, óskaði eftir að fá úthlutaðri lóð að Þingvallastræti 23 án auglýsingar. Fyrirtækið taldi sig ekki geta beðið eftir að nýtt hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt vegna bágborins ástands á álmum 1 og 2 á Hlíð, eins og fram kom í frétt akureyri.net 7. maí. Skipulagsráð hafnaði upphaflega úthlutun Þingvallastrætis 23 þar sem lóðin hafði ekki verið auglýst og fól sviðsstjóra skipulagssviðs að ræða við umsækjanda. Í framhaldi af því sendi Heilsuvernd inn nýtt erindi með ítarlegri upplýsingum. Þar kemur fram að áætlað byggingarmagn fyrir núverandi starfsemi sem horft er til sé um 3.000 fermetrar, en geta að auki átt möguleika á frekari stækkun í allt að 5.000 fermetra. 

Í minnisblaði Péturs Inga Haraldssonar, sviðsstjóra skipulagssviðs, dags. 11. maí er fer hann yfir mögulegar staðsetningar sem svar við óskum Heilsuverndar, auk útskýringa á stöðu áðurnefndrar lóðar.

  • Þingvallastræti 23 - Leyfilegt byggingamagn á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi er 1.800 fermetrar. Gildandi skipulag gerir enn ráð fyrir heilsugæslutsöð á lóðinni, en fallið hefur verið frá þeim hugmyndum í drögum að skipulagi sem nú liggja fyrir. Heilsuvernd miðar við 3.000 fermetra og möguleika á stækkun í 5.000 fermetra, en hvorki gildandi deiliskipulag né drög að endurskoðun sem liggja fyrir gera ráð fyrir slíku byggingarmagni, að sögn Péturs Inga.
  • Þursaholt 2-4 - Tveimur fjölbýlishúsalóðum við Þursaholt hefur ekki verið úthlutað, en þar má byggja tvö fjölbýlishús á 3-4 hæðum á hvorri lóð, samtals um 2.600-2.800 fermetrar að stærð, auk bílakjallara. Steinsnar frá, við Þursaholt 6, er gert ráð fyrir hjúkrunarheimili sem nú er í útboði. Hugmyndir um svokallaðan lífsgæðakjarna á þessum stað breyttust nokkuð þegar ákveðið var að stækka hjúkrunarheimilið úr 80 rýmum í 140. Mögulega verður skoðað hvort samlegð gæti verið í uppbyggingu íbúðarhúsalóðanna og hjúkrunarheimilisins þegar niðurstaða útboðs liggur fyrir.
  • Naustagata - Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir íbúðabyggð austan við leikskóla sem nú er í byggingu við Naustagötu, en því svæði hefur ekki verið úthlutað. Það svæði er um einn hektari að stærð og gert ráð fyrir íbúðarhúsum á 2-3 hæðum. Innan þessa svæðis er lóðin Naust 1 sem er ekki í eigu Akureyrarbæjar, en viðræður hafa verið í gangi um kaup á lóðinni. Þar er núna lítið einbýlishús og fjárhús.
  • Borgarmói 1 og 2 - Í minnisblaði Péturs Inga um Borgarmóa 1 og 2 segir meðal annars: „Í Móahverfi eru tvær lóðir við Borgarmóa umhverfis torg og dvalarsvæði, með samtals þremur fjölbýlishúsum upp á 4-5 hæðir ætlaðar fyrir íbúa eldri en 60 ára. Í tveimur húsum norðaustan torgsins er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæð og í húsi norðvestan torgsins er gert ráð fyrir félagsmiðstöð og starfsemi fyrir 60+ á jarðhæð. Hvert hús er 3.000 m² auk bílakjallara á bilinu 960 til 1.280 m², samtals 9.000 m² ofanjarðar og 3.200 m² í bílakjallara. Er miðað við að fjöldi íbúða sé á bilinu 72-84 íbúðum fyrir 60+.“

Þá kemur einnig fram að fyrir liggi að ósk Heilsuverndar væri að fá þessar tvær lóðir við Borgarmóa til uppbyggingar í samræmi við erindi fyrirtækisins, en einnig hefur Heilsuvernd lýst áhuga á uppbyggingu tveggja fjölbýlishúsalóða sunnan við torgsvæðið, einnig við Bergmóa. 

Skjáskot úr minnisblaði skipulagssviðs. Grænu punktarnir sýna mögulegar staðsetningar sem fjallað er um vegna lóðarúthlutunar til Heilsuverndar. Borgarmói 1 og 2 er efst til vinstri á kortinu.

Í minnisblaði Péturs Inga kemur fram að samkvæmt verkáætlun um uppbyggingu hverfisins sé gert ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar 1. júlí, en gera þyrfti breytingu á deiliskipulagi svæðisins til að auka hluta þjónustu á kostnað íbúða miðað við núverandi skipualg. 

Meirihluti skipulagsráðs tók jákvætt í erindi Heilduverndar og lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að gerður verði samningur við fyrirtækið um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara og að Heilsuvernd fái í kjölfarið vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa án auglýsingar. Er í því sambandi vísað í grein 2.3 í reglum Akureyrarbæjar um úthlutun lóða. Þar segir að skipulagsráði sé „í sérstökum undantekningartilvikum heimilt að veita vilyrði aða úthluta lóð/lóðum án undangenginnar auglýsingar að fengnu samþykki bæjarstjórnar.“ Ekki er þó nánar kveðið á um ástæður eða hve sérstök undantekningartilfellin þurfa að vera.

Bæjarráð tók undir afgreiðslu skipulagsráðs og fól bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulagssviðs að vinna málið áfram.

Útlutun vegna leiguíbúða þurfi frekari skoðun

Sóley Björk Stefánsdóttir, fulltrúi V-lista í skipulagsráði, og flokkssystir hennar, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, sem er áheyrnarfulltrúi í bæjarráði, gerðu báðar athugasemdir við hluta þessarar afgreiðslu og bentu á að óeðlilegt væri að spyrða úthlutun lóða til reksturs leiguíbúða á hagnaðargrundvelli við hraðafgreiðslu lóða undir heilbrigðisþjónustu við eldri borgara. Sóley Björk bókaði í skipulagsráði að hún teldi það óeðlilegt án þess að meiri umræða fari fram um þann hluta málsins. Báðar eru þó sáttar við að Heilsuvernd fái vilyrði fyrir lóð undir heilbrigðisþjónustu við eldri borgara fyrir tímabundna dvöl og endurhæfingu. 

Jana Salóme bætir við í sinni bókun að ríkið hafi í langan tíma dregið lappirnar í byggingu hjúkrunarrýma og ekkert gert í endurbótum á Kristnesspítala. Hún telur þó farsælast að byggja undir endurhæfingu og tímabundna dvöl við Hlíð á lóð Akureyrarbæjar þar sem nú standa raðhús í eigu Akureyrarbæjar.

Í minningu sláttumanna og línumerkjara

Orri Páll Ormarsson skrifar
12. júní 2026 | kl. 13:30

Skógarbotnsplöntur

Sigurður Arnarson skrifar
10. júní 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Syðra Melshús, Gilsbakkavegur 3

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
05. júní 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir Patti Smith

Ragnar Hólm Ragnarsson skrifar
03. júní 2026 | kl. 19:30

Randahlynur og kynusli

Sigurður Arnarson skrifar
03. júní 2026 | kl. 10:30

Meðvituð hreyfing

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00