Við elskum þessar mellur
Á SPJALLI MEÐ AÐALSTEINI ÖFGAR – 4
Þessi nístingskaldi sunnudagur. Léttleiki helgarinnar hefur umbreyst í þunga þanka og þrautir um allan líkamann. Ég mun ekki meika þennan dag og hvað þá að komast í vinnu á mánudag þegar allt er með þessum ömurlega brag. Við sem ætluðum jafnvel að hafa matarboð og tókum út humar í gær en eigum ekkert hvítvín og ekkert hjartastyrkjandi eftir fjörugar stundir á föstudag og laugardag. Útilokað að fá gesti núna. Heilsan hvort eð er í molum og myndi ekki batna nema með nokkrum bjórum en ríkið er lokað. Æ og ó, aumingja ég!
Tatara! Nýja ríkið bjargar málunum. Opið á sunnudögum, opið alla daga, opið öll kvöld, komdu til okkar, bjargaðu heilsunni, bjargaðu veislunni, bjargaðu okkur um smá þóknun í anda frelsis og framfara! Þú verður nýr og betri maður ef þú verslar við Nýja ríkið og mundu að ríkiseinokun er prump, við verðum að lofa og prísa frelsið, já, frelsi til athafna, frelsi til gróða, frelsi til að gera aðra óða.
„Stefán minn?“ Aðalsteinn Öfgar var óvenju niðurlútur. Við sátum í eldhúsinu hjá honum niðri á Eyri og hann hafði verið svo vinsamlegur að hella upp á annað kaffi fyrir mig en gulan Braga. Þessi gamli félagi minn var oft ansi næmur og nú virtist hann lesa hugsanir mínar. „Ætlarðu nokkuð að fara að gagnrýna frjálsu áfengisverslanirnar? Þú veist að Guðaveig hérna í hverfinu hefur haldið mér gangandi þegar allt annað hefur brugðist og þótt ég sé gamall allaballi styð ég heilshugar frelsi í áfengissölu.“
Guðaveig var bara ein af fjölmörgum svokölluðu netverslunum með áfengi sem sprottið höfðu upp í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld voru tvístígandi og svifasein þegar framtakssamir einstaklingar ákváðu að spila aðeins á lög og reglur. Raunar hið ótrúlegasta mál. Það er víst hægt að þykjast vera erlend vefverslun til að smjúga fram hjá regluverkinu en samt getur fólk bara mætt á staðinn, tekið upp símann og pantað og svo fara starfsmenn í kælinn eða lagerinn og reiða fram það sem pantað er. Mjög svipað því að versla í Vínbúðinni.
„Sko, mér hefur liðið þannig á sunnudegi að mig hefur ekki langað að lifa lengur en þá hefur Guðaveig bjargað mér, ég hef náð að rétta mig af, bara með svona sex, átta bjórum og dagurinn er kominn í lag og lífið er hér. Þetta hefur íslenska ríkið aldrei getað gert fyrir mig, þarna eygi ég von, hvenær sem er. Ég styð því einkaframtakið heilshugar í þessum efnum,“ sagði Aðalsteinn Öfgar.
Ég skil hann alveg. Alkóhólisti sem eftir átta meðferðir er staðráðinn í því að drekka þangað til hann getur það ekki lengur, það kallar á stöðugt og virkt aðgengi að áfengi. En þetta venjulega fólk sem stundum dettur í hug að bjóða upp á humar og hvítvín á sunnudegi, á það ekki bara að vera búið að sýna smá fyrirhyggju og gera ráðstafanir? Ef það á humar í frysti hlýtur það að eiga hvítvín í vínskápnum. Spurning fyrir hverja þessi svokallað netverslun með áfengi er. Vissulega er eitursnjallt að verða sér úti um umboð (heildsölu) fyrir hinar og þessar áfengistegundir og svo er bara málið að selja þetta sem mest og víðast og ná sæmilegri afkomu.
Nú er það hins vegar svo að afkoma þessara einstaklinga má ekki bitna um of á lýðheilsunni því aukið aðgengi kallar á aukna neyslu og allar marktækar rannsóknir sýna fram á skaðsemi áfengis og sérstaklega fyrir ungmenni vor og óþroskaðan heila þeirra. Og hvað gerist svo þegar/ef þessi svokallaða erlenda netsala verður dæmd ólögleg og sprúttsalar henda inn hvíta gjaldþrotahandklæðinu og ríkið tekur skellinn, sem það gerir reyndar líka í kjölfar aukinnar neyslu, sjúkdóma og ofbeldis. Sprúttsalinn græðir, almenningur borgar.
„Við elskum þessar mellur,“ hrökk allt í einu upp úr Aðalsteini Öfgar, þessum fyrrverandi vinnufélaga mínum í Vegagerðinni og vini til margra ára. Sennilega var þetta vísun í einhvern rapptexta en svipurinn á honum var þess eðlis að ég held að hann hafi verið að tala um ríkisstjórnina. – Já, það er spurning. Höfum við gengið til góðs? Er íslenskt samfélag eins og við viljum hafa það?
Stefán Þór Sæmundsson er gamall blaðamaður og kennari
Hin hollu ber hafþyrnis
Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir
Ævispor
Stórkostleg hátíð blásara