Fara í efni
Pistlar

Vildi gleðja aðra krakka og gaf nýtt sjónvarp

Páll Orri Jóhannsson ásamt foreldrum sínum, Elsu og Jóhanni. Mynd af vef SAk.

Barnastofa bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) fékk nýverið höfðinglega gjöf þegar Páll Orri Jóhannsson færði henni 50 tommu snjallsjónvarp. Greint er frá þessu á vef stofnunarinnar.

„Páll Orri hafði áður verið sjúklingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þegar hann dvaldi á barnastofunni fannst honum sjónvarpið þar ekki uppfylla alveg þær kröfur sem gera má til afþreyingar fyrir krakka, eða eins og hann orðaði það sjálfur, „alveg glatað“. Hann ákvað því að gera eitthvað í málinu og mætti á bráðamóttökuna með nýtt 50 tommu snjallsjónvarp handa barnastofunni,“ segir á vef sjúkrahússins.

„Nýja sjónvarpið er hægt að tengja við síma og spila efni beint á skjáinn. Það mun án efa nýtast þeim börnum sem dvelja á barnastofunni og gera þeim auðveldara að stytta sér stundir,“ segir þar. „Starfsfólk bráðamóttökunnar þakkar Páli Orra kærlega fyrir rausnarlega gjöfina og þann hlýhug sem hún ber vitni um.“

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30