Vallartorg – Tillagan sem var í 3. sæti
Tillagan VALLARTORG – Bæjarhjarta, frá Teikna - Teiknistofu Arkitekta ehf í Reykjavík, varð í 3. sæti samkeppninnar um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Niðurstaðan var kynnt í gær eins og akureyri.net sagði frá í gærkvöldi. Teikna - Teiknistofa arkitekta ehf. á umrædda tillögu.
„Grunnhugmynd skipulagsins er að móta nýtt bæjarhjarta á Akureyrarvelli þar sem almenningsrými, þjónusta og íbúðabyggð mynda heildstætt og lifandi bæjarumhverfi sem sameinar lágreista, sólríka byggð og skýran borgarbrag,“ segir í tillögu Teikna.
„Skipulagið byggir á skýrum gönguási sem tengir Hafnarstræti, Ráðhústorg og Geislagötu við nýtt torg á svæðinu. Leiðin liggur í gegnum nýjan fyrirhugaðan Ráðhúsgarð og opnar sterka sjónlínu að torginu sem eykur aðdráttarafl og leiðir fólk áfram. Meðfram ásnum er virk starfsemi á jarðhæðum sem styrkir göturýmin og eykur samfellu í borgarlífi.“
HÉR AÐ NEÐAN ERU MYNDIR OG TEXTI ÚR TILLÖGUNNI

MARKMIÐ
Meginmarkmið tillögunnar eru að:
- Styrkja miðbæinn með aukinni íbúðauppbyggingu og bættu aðgengi.
- Tryggja lágreista og sólríka byggð sem fellur vel að núverandi umhverfi.
- Móta skjólgóð og aðlaðandi almenningsrými sem nýtast allt árið.
- Tengja saman miðbæ Akureyrar og ný þróunarsvæði með skýrum og aðlaðandi gönguásum.
- Skapa sterkt og sveigjanlegt bæjarumhverfi sem styður bæði daglegt mannlíf og viðburði.
- Byggja upp blandaða byggð með virkri starfsemi á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum.
GÖNGULEIÐIR OG TENGINGAR
Skipulagið byggir á skýru og samfellu göngu- og hjólastígakerfi sem tengir svæðið við miðbæ, Glerártorg og nærliggjandi hverfi. Gönguleiðir eru mótaðar með áherslu á upplifun, öryggi og aðgengi. Virk starfsemi, sjónlínur og fjölbreytt rými hvetja til útiveru og hreyfingar sem eykur notkun svæðisins. Um 5 mínútur ætti að taka að ganga frá Glerártorgi að nýju Vallartorgi og aðrar 5 mínútur þaðan að Ráðhústorgi.

ÍBÚÐIR FYRIR 55+
Samfélag og sjálfstæði á efri árum
Nyrst á samkeppnissvæðinu, við grænan garð, eru tvö fjölbýlishús fyrir íbúa 55 ára og eldri sem mynda heildstætt og rólegt búsetuumhverfi. Skipulagið leggur áherslu á sjálfstæða búsetu en jafnframt nálægð við sameiginleg rými á jarðhæð sem styðja við daglegt líf og félagslega virkni. Hver íbúð hefur hléhlið í vestur með svefnherbergi og stofu.
Jarðhæðin er hugsuð sem lifandi tengipunktur með aðstöðu til samveru, hreyfingar og léttrar þjónustu, þar sem íbúar geta hist á eigin forsendum. Þannig myndast náttúrulegur vettvangur fyrir samfélag án þess að ganga á einkarými.
TORG OG STÚKA
Í hjarta svæðisins er fjölnota borgartorg sem verður aðal samkomurými svæðisins. Torgið opnast til suðurs en byggð og landslag mynda skjól til norðurs.
Torgið er hannað fyrir fjölbreytta notkun, allt frá daglegu mannlífi til stærri viðburða, svo sem tónleika og hátíða, auk tímabundinna vetrarnota, þar á meðal skautasvells.
Núverandi stúka er varðveitt og samþætt í nýju skipulagi sem virkur hluti borgarrýmisins. Búningsherbergjum og öðrum rýmum í stúkunni verður breytt í vinnustofur og gallerí, sem styðja við skapandi starfsemi og styrkja tengsl svæðisins við listalíf og menningarstarf í miðbæ Akureyrar.
Í kringum stúkuna er mótað stigskipt landslag með setsvæðum sem tengir hana beint við torgið og skapar fjölbreytt dvalarrými.
Við stærri viðburði nýtist stúkan sem áhorfendasvæði og styrkir þannig hlutverk samkomutorgsins sem vettvangs fyrir mannlíf og menningarviðburði.

BYGGÐARMYNSTUR
Byggðin umhverfis torgið er blönduð og styður við virkt bæjarlíf. Á jarðhæðum eru verslanir, þjónusta og samfélagsleg starfsemi sem tengist beint við almenningsrýmin - Vallartorgið.
Á efri hæðum eru íbúðir sem stuðla að virkri og stöðugri nýtingu svæðisins.
Hús eru almennt þrjár hæðir með inndreginni fjórðu hæð, sem tryggir lágreistan skala, sólrík útisvæði og aðlögun að aðliggjandi byggð. Áhersla er lögð á virkar framhliðar að götum og torgum.
Byggðin opnast sérstaklega að Glerárgötu þar sem hún styrkir tengsl við verslunar- og þjónustusvæði. Við norðurjaðar svæðisins tengist ný byggð starfsemi við Glerártorg og styrkir þannig tengslin milli svæðisins og nærliggjandi bæjarhluta.

FJALLIÐ
Bílastæðahús með fjölbreyttri notkun
Nýtt bílastæðahús er lykilinnviður í skipulagstillögunni sem þjónar bæði íbúum og gestum. Byggingin er þrjár hæðir og er staðsett þannig að hún styður við aðgengi að svæðinu án þess að raska gæðum almenningsrýma.
Bílastæðahúsið skapar jafnframt möguleika á samnýtingu bílastæða fyrir gesti miðbæjarins, íbúa svæðisins og starfsmenn ráðhússins.
Með því er stuðlað að hagkvæmri nýtingu innviða, bætt aðgengi að miðbænum og minna umfang yfirborðsbílastæða. Á 1. hæð byggingarinnar er gert ráð fyrir verslun og þjónustu, svo sem mathöll eða kaffihúsi, sem snýr að skjólgóðu og sólríku útisvæði við bæjartorgið og styrkir tengsl milli byggingarinnar og mannlífs á svæðinu.
Lyfta tengir allar hæðir byggingarinnar og tryggir aðgengi að þaksvæðinu fyrir alla notendur.
Þak byggingarinnar er nýtt sem opið útivistarsvæði.
Þakgarðurinn er mótaður sem landslagsform sem minnir á fjall og býður upp á fjölbreytta notkun, svo sem göngu, leik og útivist.
Garðurinn tengist beint við torgið og getur einnig nýst til íþróttaiðkunar í tengslum við líkamsræktaraðstöðu.
FJÖLBÝLISHÚS VIÐ TORGIÐ

3–4 hæða hús með virkum jarðhæðum sem opnast að torginu og skapa líflegt götulíf. Íbúðir á efri hæðum mynda hlýlega umgjörð, þar sem inndregin efsta hæð og fjölbreytt þakform vísa í byggingararf Akureyrar.
FJÖLSKYLDUHÚS
RAÐHÚS Á 2-3 HÆÐUM

Vel mótuð fjölskylduhús í mannlegum skala, í takt við byggðina við Hólabraut og Laxagötu. Forgarðar að götu og skjólgóðir bakgarðar skapa jafnvægi milli líflegs götulífs og einkarýmis – þar sem nágrannatengsl og hlýlegt mannlíf fá að þróast náttúrulega.
EINBÝLISHÚS

Lágreist nýbyggð við Brekkugötu sem fellur að núverandi byggð og tryggir óskert útsýni frá nærliggjandi húsum og sem næst óskerta ásýnd á sérstaka götumynd Brekkugötu.
STÚKAN
NÝTT LÍF, NÝTT HLUTVERK

Endurgerð og stækkuð stúka verður að lifandi samkomurými í hjarta svæðisins. Undir stúkunni skapast sveigjanlegt rými fyrir menningu, veitingar eða skapandi starfsemi, með fallegri dagsbirtu frá opnunum í þaki. Þakið sjálft verður virkt útisvæði sem tengist viðburðum á torginu og býður upp á einstaka upplifun.

Gunnar Örn Egilsson tekur við verðlaunum fyrir 3. sæti í samkeppninni. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið
Viðvíkurförin
Hús dagsins: Lækjargata 22
Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun