Fara í efni
Pistlar

Tillagan í 2. sæti „brúar hjarta“ Akureyrar

Tillaga marimo arkitekta í Reykjavík, Akureyrarvöllur – Brúum hjarta Akureyrar, varð í 2. sæti samkeppninnar um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Niðurstaða dómnefndar var tilkynnt í gær eins og akureyri.net greindi frá í gærkvöldi.

Meðal atriða í tillögunni má nefna eftirfarandi:

  • Gert er ráð fyrir að um eins kílómetra löng vistgata um Akureyrarvöll, og ný brú yfir Glerárgötu við Hvannavelli, tengi miðbæinn og svæðið norður við Glerá.
  • Yfirborð Glerárgötu undir brúnni er lækkað um allt að 3, 8 metra og hraðinn lækkaður í 40 km/klst á kaflanum að Hofi. Bætir það öryggi vegfarenda og lækkar umferðarhávaða.
  • Hjólandi umferð úr miðbænum getur farið um vistgötuna en einnig eru stofnstígar meðfram Glerárgötu framhjá Ráðhúsinu þaðan sem hjólað er áfram norður.
  • Gangandi vegfarendur eiga greiða leið um svæðið eftir vistgötunni sem og eftir stofnstíg við Glerárgötu og yfir á Eiðsvöll.
  • Frá Glerártorgi í norðri er göngustígur færður nær göngubrú yfir Þórunnarstræti og í gegnum skógi vaxna brekkuna liggur meðfram brekkunni og býður upp á ýmiskonar leiki.

Í tillögunni er gert ráð fyrir brú yfir Glerárgötu frá Hvannavöllum yfir á Akureyrarvöll, Vallarbrú, að Ungmennahúsi Akureyrar sem er hægra megin á myndinni.

  • Torg og dvalarrými á Akureyrarvelli njóta sólar mestan hluta ársins. Viðburðartorg með stúku sem er 60 m x 60 m getur hýst stóra menningarviðburði eins og tónleika eða minni viðburði eins og jólamarkað og skautasvell.
  • Dregið er úr hæðarmun innan Akureyrarvallar með því að koma fyrir bílageymslum sem fylgja halla landslagsins frá vestri til austurs og mynda við það upphækkað gólf fyrir byggingar á Akureyrarvelli.
  • Gert er ráð fyrir fjölbreyttri þjónustu meðfram aðkomuvegi og vistgötu Akureyrarvallar á fyrstu hæð bygginga. Svæði til útiveitinga myndast á sólríkum torgum og veitingahúsið Greifinn fær við breytingar á Glerárgötunni kærkomið tækifæri til útiveitinga.
  • Íbúðir eru á efri hæðum bygginga sem eru 2-4 hæðir. Möguleiki er á að nýta rishæð undir mænisþaki fyrir milliloft í íbúðum.
  • Gert er ráð fyrir 130 íbúðum af mismunandi stærðum. Lögð er áhersla á vandaðan arkitektúr fyrir fjölbreyttan aldur og fjölskylduform.
  • Inngarður íbúðabyggðar er í vari frá skarkala almenningssvæða og nýtur með fyrirkomulagi bygginga skjóls og sólar.
  • Bílastæði í bílageymslu eru samtals 154 og samnýtast í búðum og verslunar- og þjónusturýmum.
  • Ungmennahús Akureyrar tekur á móti vegfarendum þegar komið er yfir Vallarbrúna. Í barnvænu samfélagi Akureyrar fær rödd barna og ungmenna að heyrast og er ungmennahúsið hugsað sem opið, lifandi og sýnilegt samfélagsrými.
  • Menningarstígurinn leiðir Akureyringa og gesti á öllum aldri meðfram klifurklöppum, hlaupabrautum og rennibrautum áður en komið er að endurgerðri stúku við viðburðartorgið og Vísindamiðstöðina. Þar er forvitni gesta og námsfýsi virkjuð til tilrauna og uppgötvana um vísindi og náttúru. Miðstöð sem á ekki sinn líkan á landinu og mun draga að gesti langt að.
  • Vísindamiðstöðin er reist ofan á 100 bíla bílastæðahúsi sem mun bæði þjóna Vísindamiðstöðinni og vera samnýtt með Ráðhúsi auk þess sem það mun nýtast gestum miðbæjarins.

HÉR AÐ NEÐAN ERU MYNDIR OG TEXTI ÚR TILLÖGUNNI

Brúum bil á milli náttúru og manngerðs umhverfis

Í tillögunni renna gróður, manngert og náttúrulegt landslag, byggingar, samgöngumannvirki og torg saman í eina heild með manneskjuna í forgrunni. Leitast er við að vernda tré markvisst til að skapa skjól og bæta örloftslag og náttúrulegt landslag nýtt til leikja. Torg og dvalarrými njóta sólar mestan hluta ársins. Viðburðartorg með stúku sem er 60 m x 60 m getur hýst stóra menningarviðburði eins og tónleika eða minni viðburði eins og jólamarkað og skautasvell. Ofanvatn er leitt í gróðurker og regnbeð þannig að hringrás vatns er sýnileg en síbreytileg eftir veðri og árstíðum. Á veturna geta regnbeðin verið nýtt fyrir snjóruðninga.


Brúum bil frá Brekku til Oddeyrar

Dregið er úr hæðarmun innan Akureyrarvallar með því að koma fyrir bílageymslum sem fylgja halla landslagsins frá vestri til austurs og  mynda við það upphækkað gólf fyrir byggingar á Akureyrarvelli. Bílageymslurnar mynda stoðvegg til austurs sem skýlir byggðinni fyrir hávaða frá Glerárgötunni ásamt grónum jarðvegsmönum meðfram götunni. Hækkun gólfs íbúða ofan á bílageymslum lyftir sjónlínum úr íbúðum yfir umferðarþunga götuna og áfram út á Oddeyrina og út á sjóinn. Íbúar hafa aflokaðan inngarð sem aðgengilegur er um göng frá aðkomuleiðum frá vistgötu eða Smáragötu.

Séð frá almennu leiksvæði með hlaupabrekku og rennibrautum að í búðabyggð með þjónustu á jarðhæð og yfir menningarstíg.

Brúum bil frá miðbæ til miðsvæðis Oddeyrar

Miðsvæði M1 og M4 tengjast með vistgötu um Akureyrarvöll og nýja brú yfir Glerárgötu um kílómetraleið frá Hvannavöllum í norðri og allt að Hafnarstræti í suðri. Yfirborð Glerárgötu undir brúnni er lækkað um allt að 3,8 metra og hraðinn lækkaður í 40 k m/klst á kaflanum fram að Hofi. Bætir það öryggi vegfarenda og lækkar umferðarhávaða. Lokað er á beinar tengingar út á Glerárgötu frá íbúðagötum Oddeyrar fyrir öruggara, hljóðlátara og fallegra umhverfi. Hjólandi umferð úr miðbænum getur hjólað vistgötuna en einnig eru stofnstígar meðfram Glerárgötu framhjá Ráðhúsinu þaðan sem hjólað er áfram norður í gegnum ráðhúsgarðinn og sem leið liggur yfir örugga götuþverun á gangbraut yfir Smáragötu og áfram á aðskildum stofnstíg að nýju brúnni að Hvannarvöllum. Gangandi vegfarendur eiga greiða leið um svæðið eftir vistgötunni sem og eftir stofnstíg við Glerárgötu og yfir á Eiðsvöll. Frá Glerártorgi í norðri er göngustígur færður nær göngubrú yfir Þórunnarstræti og í gegnum skógi vaxna brekkuna liggur meðfram brekkunni og býður upp á ýmiskonar leiki.

Brúum bil á milli kynslóða

Gert er ráð fyrir fjölbreyttri þjónustu meðfram aðkomuvegi og vistgötu Akureyrarvallar á fyrstu hæð bygginga. Svæði til útiveitinga myndast á sólríkum torgum og veitingahúsið Greifinn fær við breytingar á Glerárgötunni kærkomið tækifæri til útiveitinga.

Íbúðir eru á efri hæðum bygginga sem eru 2-4 hæðir. Möguleiki er á að nýta rishæð undir mænisþaki fyrir milliloft í íbúðum. Fjöldi íbúða er 130 talsins og eru þær af mismunandi stærðum. Lögð er áhersla á vandaðan arkitektúr fyrir fjölbreyttan aldur og fjölskylduform. Inngarður íbúðabyggðar er í vari frá skarkala almenningssvæða og nýtur með fyrirkomulagi bygginga skjóls og sólar. Trjáklasar meðfram Glerárgötu fléttast með gróðurbeðum inn að inngarði íbúða þar sem stofnstígur hjólandi og gangandi á líka leið hjá. Inngangar að stigahúsum íbúða eru frá inngarðinum.

Fulltrúar marimo arkitekta ásamt formanni dómnefndar, frá vinstri: Hildur Gunnarsdóttir, Agnes Krzysztonek, Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður dómnefndar, Anna Leoniak og Helga Björg Kjerúlf. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Bílastæði í bílageymslu eru samtals 154 og samnýtast í búðum og verslunar- og þjónusturýmum. Þar er gert ráð fyrir 6 deilibílum. 90% hjólastæða fyrir íbúðir er að finna í bílageymslu en önnur eru á yfirborði nálægt inngöngum í íbúðir í inngarði. Fyrir verslanir eru 80% hjólastæða við innganga frá vistgötu, í samræmi við stefnu Akureyrarbæjar. Innkeyrslur í bílageymslu eru um stuttar vegalengdir frá aðkomugötu og vistgötu, þar sem einnig er aðkoma fyrir hjólandi. Þriðja aðkoma fyrir hjólandi í hjólageymslu er frá miðri vistgötu.

Ungmennahús Akureyrar tekur á móti vegfarendum þegar komið er yfir Vallarbrúna. Í barnvænu samfélagi Akureyrar fær rödd barna og ungmenna að heyrast og er ungmennahúsið hugsað sem opið, lifandi og sýnilegt samfélagsrými. Það er bæði áfangastaður og dvalarstaður fyrir í byrjun eða við enda svæðisins. Myndar það þar með mótvægi við stjórnsýslu bæjarins sem er að finna í skrifstofuhúsnæði fræðslu- og lýðheilsusviðs og í Ráðhúsinu í hinum enda Akureyrarvallar.

Menningarstígurinn leiðir Akureyringa og gesti á öllum aldri meðfram klifurklöppum, hlaupabrautum og rennibrautum áður en komið er að endurgerðri stúku við viðburðartorgið og Vísindamiðstöðina. Þar er forvitni gesta og námsfýsi virkjuð til tilrauna og uppgötvana um vísindi og náttúru. Miðstöð sem á ekki sinn líkan á landinu og mun draga að gesti langt að. Vísindamiðstöðin er reist ofan á 100 bíla bílastæðahúsi sem mun bæði þjóna Vísindamiðstöðinni og vera samnýtt með Ráðhúsi auk þess sem það mun nýtast gestum miðbæjarins. Ofan við Vísindamiðstöðina eru útsýnisrólur þaðan sem er stórkostlegt útsýni niður eftir ás til Eiðsvallar og áfram yfir Oddeyrina og út á Eyjafjörðinn. Ef horft er í hina áttina frá Eiðsvelli að Vísindamiðstöðinni tekur hjartað kipp.

Viðburðartorg með endurhannaðri stúku; stólar úr gömlu stúkunni fá nýtt líf.

marimo arkitektar

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00

Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun

Sigurður Arnarson skrifar
20. maí 2026 | kl. 09:00

Líkaminn geymir meira en við höldum

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
19. maí 2026 | kl. 09:00