Fara í efni
Pistlar

Unnið að breyttri aðkomu að Hömrum

Mynd: Þorgeir Baldursson

Framkvæmdir eru hafnar við breytingar á aðkomu að tjaldsvæðinu á Hömrum. Komið verður á einstefnuakstri, þar sem ekið verður inn á tjaldsvæðið til suðurs og út til norðausturs. Vegurinn að Hömrum greinist þá í tvennt fyrir neðan þjónustuhúsið – ný aðkoma mun liggja norðan við húsið og sveigja til suðurs vestan við húsið. Þegar er búið að leggja þann veg en eftir er að ganga frá bílastæðum og gatnamótum við þjónustuhúsið. Einnig er verið að leggja stíg frá þjónustuhúsinu fyrir gangandi og hjólandi umferð niður að gatnamótunum við Kjarnagötu.

Mynd: Þorgeir Baldursson

Í minnisblaði umhverfis- og mannvirkjasviðs um verkefnið kemur fram að markmiðið sé að bæta aðgengi gesta og heimamanna að Hömrum, sérstaklega yfir sumartímann þegar aðsókn er mest. Undanfarin ár hafi komið í ljós að núverandi aðkoma ræður illa við þann fjölda sem sækir svæðið, sem leitt hafi til umferðaröngþveitis innan tjaldsvæðisins. Slíkar aðstæður skapi verulega hættu fyrir umferðaröryggi gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að framkvæmdirnar muni tryggja greiða og örugga leið af svæðinu ef eldur kemur upp, og bæta aðgengi viðbragðsaðila til muna.

Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdin kosti um 30 milljónir króna.

Tillaga hönnuðar að breyttri aðkomu að Hömrum. Núverandi þjónustuhús er fyrir miðri mynd.

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00