Fara í efni
Pistlar

Þórsarinn Sigurður Jökull hjá Midtjylland

Sextán ára knattspyrnumaður úr Þór, Sigurður Jökull Ingvason, sem er markvörður, dvelur nú í Danmörku þar sem hann æfir með og skoðar aðstæður hjá danska úrvalsdeildarliðinu FC Midtjylland. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.

Þar kemur fram að Sigurður Jökull hafi skrifaði undir sinn fyrsta leikmannasamning við Þór í vetur og hafi varið markið hjá 2. og 3. flokki á Íslandsmótinu í sumar.

Danska félagið hafði samband við Þór á dögunum og óskaði eftir að fá Sigurð til æfinga og úr varð að hann hélt til Danmerkur fyrir helgi og mun æfa með unglingaliðum félagsins næstu daga.

Sigurður hefur spilað þrjá landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, U15 og U16.

Midtjylland keypti á dögunum bakvörðinn Egil Orra Arnarsson frá Þór, hann mætir til æfinga í Danmörku 1. júlí en leikur með Þór þangað til. Egill Orri er einnig 16 ára.

Kunningi frænda míns

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. maí 2024 | kl. 14:00

Dagur læknisins

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
17. maí 2024 | kl. 18:00

Kolefnissugur og endurskinshæfni gróðurlenda

Sigurður Arnarson skrifar
15. maí 2024 | kl. 13:30

Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 35 (Fagrastræti 1)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
15. maí 2024 | kl. 08:00

Þúfnaganga

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
13. maí 2024 | kl. 13:30

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30