Fara í efni
Pistlar

Þórsarar rótburstuðu Fjölnismenn á útivelli

Ibrahima Balde gerði þrjú mörk fyrir Þór gegn Fjölni í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar gjörsigruðu lið Fjölnis, 5:0, á útivelli í kvöld í 10. umferð Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þórsliðið er í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig, HK hefur 18, Njarðvík 20 og ÍR er á toppnum með 22 stig.

Þór hafði mikla yfirburði í Grafarvoginum í kvöld. Ibrahima Balde, miðjumaðurinn firnasterki, gerði þrennu; skorað fyrst eftir aðeins sex mínútur, aftur á 42. mín. og hann skoraði þriðja sinni á 78. mín. Breytti stöðunni þá í 4:0 því skömmu áður hafði Hermann Helgi Rúnarsson komið Þór í 3:0. Aron Ingi Magnússon gerði fimmta og síðasta markið nokkrum mín. fyrir leikslok.

Markvörður Fjölnis var rekinn af velli á 62. mín. fyrir að fella Balde sem kominn var einn inn fyrir vörnina. Snemma í leiknum var Fjölnismaðurinn Óskar Dagur Jónasson heppinn að sleppa með gult eftir afleita tæklingu; sparkaði gróflega í Vilhelm Ottó Biering Ottósson, vinstri bakvörð, sem fór meiddur af velli. Fjölnismenn hefði ekki getað kvartað þótt rauða spjaldið hefði einnig farið á loft þá.

Nánar á morgun

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Lýsið frá Tona og Jónda

Orri Páll Ormarsson skrifar
27. júní 2025 | kl. 10:00

„Við erum einu skrefi frá því að sagan endurtaki sig“

Halldóra Margrét Pálsdóttir skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

„Ég yfirgaf ekki Rússland, Rússland yfirgaf mig“

Sveinn Brimar Jónsson skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

Skaðvaldar á birki

Sigurður Arnarson skrifar
25. júní 2025 | kl. 09:30

Hús dagsins: Aðalstræti 50

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. júní 2025 | kl. 08:30

Eftirmatur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
23. júní 2025 | kl. 11:30