Fara í efni
Pistlar

Víkingar höfðu betur og KA er næst neðst

Nikolaj Hansen kemur fagnandi til Gylfa Þórs Sigurðssonar eftir að sá danski náði forystu fyrir Víking í kvöld. Sending Gylfa var mjög góð og skalla Nikolaj frábær. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

KA tapaði 2:0 fyrir Víkingi á heimavelli í kvöld í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. KA-menn eru í næst neðsta sæti deildarinnar með 12 stig eftir jafn marga leiki en Víkingar styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með sigrinum.

Nikolaj Hansen gerði fyrra mark Víkinga með frábærum skalla eftir góða aukaspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar þegar hálftími var liðinn. KA-menn töldu brögð hafa verið í tafli í baráttu varnar- og sóknarmanna þegar Gylfi spyrnti og Nikolaj þess vegna komist óáreittur að boltanum. Voru ósáttir við að ekki var dæmt á Víkinga. Dómarinn sá hins vegar ekkert athugavert.

Jafnvægi hafði verið með liðunum en hvorugt skapað neina verulega hættu fram að markinu. KA ógnaði marki gestanna fljótlega eftir að Víkingar náðu forystu en ekkert varð úr og það er einmitt akkilesarhæll KA-manna undanfarið. Varnarleikurinn var vandamál framan af sumri en nú er eins og liðið geti hreinlega ekki skorað. KA hefur ekki gert nema 10 mörk í 12 leikjum og Ingvar markvörður Víkings þurfti aldrei að taka á honum stóra sínum í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson innsiglaði sigur Víkings með föstu, hnitmiðuðu skoti utan vítateigs á 69. mínútu.

Eftir leikinn eru Víkingar með 26 stig að 12 leikjum loknum, fjórum stigum meira en Breiðablik, sem mætir Fram á morgun.

KA er með 12 stig úr 12 leikjum og í næst neðsta sæti, sem fyrr segir. ÍA er neðst með 9 stig úr 12 leikjum. KR hefur 13 stig úr 11 leikjum, ÍBV og Afturelding bæði 14 stig úr 11 leikjum og FH 14 stig úr 12 leikjum.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Meira síðar

Hús dagsins: Aðalstræti 50

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. júní 2025 | kl. 08:30

Eftirmatur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
23. júní 2025 | kl. 11:30

Frá morgni til kvölds

Jóhann Árelíuz skrifar
22. júní 2025 | kl. 06:00

Svipmynd úr bernsku

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
20. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Rögnvaldsson – Mikilhæfur leiðtogi

Sigurður Arnarson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:00

Mokkaskinn

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
16. júní 2025 | kl. 11:30