Fara í efni
Pistlar

Þórsarar bjóða upp á vöfflur og súkkulaði

Mynd af vef Þórs

Íþróttafélagið Þór býður upp á vöfflur með rjóma og rjúkandi súkkulaði á föstudögum á aðventunni eins og síðustu ár. Fyrsta boðið að þessu sinni verður í dag.

Eins og mörg undanfarin ár taka fyrrum formenn Íþróttafélagsins Þórs sig til og standa vaktina við vöfflujárnin í desember, segir í tilkynningu frá félaginu; nú föstudagana 5., 12. og 19. desember.

„Það verða þau Árni Óðinsson, Þóra Pétursdóttir, Sigfús Helgason og svo núverandi formaður, Nói Björnsson sem taka þá móti gestum í Hamri frá kl 9.00 til kl 12.00 á föstudögum á aðventunni. Allir hjartanlega velkomnir að koma og gæða sér á rjúkandi vöfflum með sultutaui og drekka heitt súkkulaði með. Finnum jólaandan blandast saman við ilminn úr eldhúsinu í Hamri í desember,“ segir í tilkynningu Þórsara.

Sigfús Ólafur Helgason, Þóra Pétursdóttir og Árni Óðinsson standa við vöfflujárnin í Hamri á föstudagsmorgnum fram að jólum.

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00