Fara í efni
Pistlar

Spennandi lokasprettir í blaki og íshokkí

Nú fer að draga til tíðinda í hinum ýmsu deildum sem spilaðar eru yfir veturinn og úrslitakeppnir nálgast. Toppbaráttan í Unbroken-deild karla í blaki er jöfn og spennandi og um helgina ráðast úrslitin í Toppdeild karla í íshokkí. 

Jöfn og spennandi barátta í blakinu

Toppbaráttan í Unbroken-deild karla í blaki er jöfn og spennandi þegar liðin eiga aðeins örfáa leiki eftir. Hamar stendur best að vígi með 44 stig, þá koma Afturelding og Þróttur R. með 40 stig og KA með 39 stig, en liðin eiga mismarga leiki eftir. KA og Afturelding eiga fjóra leiki eftir, Hamar þrjár og Þróttur tvo.

KA leikur síðustu heimaleiki sína í deildinni í dag og á morgun þegar Mosfellingar í Aftureldingu koma í heimsókn norður.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    KA-heimilið kl. 15:00
    KA - Afturelding
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Barist um deildarmeistaratitilinn í íshokkí karla

Karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí sækir lið Skautafélags Reykjavíkur heim um helgina og mætast liðin tvívegis, á laugardag og sunnudag. Upphaflega átti að fara fram þriðja og síðasta Ofurhelgin í Toppdeild karla þar sem öll þrjú liðin mætast sömu helgina, en breyting hefur orðið á leikjadagskrá deildarinnar. Fjölnir fékk leyfi hjá stjórn ÍHÍ til að gefa þá leiki sem karlaliðið átti eftir í deildinni. Því eru aðeins eftir tveir leikir í deildinni, tvær viðureignir SA og SR í Reykjavík í dag og á morgun.

  • Toppdeild karla í íshokkí
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA
  • Útsending: Icehockeyicelandtv.is
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Að frátöldum leikjunum sem Fjölnir gefur hefur SA náð sér í 25 stig, en SR 29. SA fer því í 31 stig með stigunum fyrir gefnu leikina, en SR í 32 stig. Það eru því mikilvæg sex stig í boði í Laugardalnum um helgina. SA og SR hafa mæst sex sinnum í vetur. SA hefur unnið þrjá heima og einn fyrir sunnan, en SR einn úti og einn heima.

Það ræðst því um helgina hvort liðið verður deildarmeistari og tryggir sér oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Ef SR vinnur fyrri leikinn án þess að fara í framlengingu er efsta sætið þeirra, en ef SA nær stigi eða stigum á laugardag ráðast úrslitin í sunnudagsleiknum.

Barátta um að forðast fall úr 1. deildinni

Karlalið Þórs í körfuknattleik er í hörkubaráttu við að forðast fall úr 1. deildinni, næstefstu deild. Liðið hefur unnið þrjá leiki, eins og Hamar, en Fylkir er fyrir neðan þessi lið með tvo sigra. Fjórar umferðir eru eftir og á laugardag sækja Þórsarar Fjölnismenn heim í Grafarvoginn.

  • 1. deild karla í körfubolta, 19. umferð
    Dalhús í Grafarvogi kl. 18:30
    Fjölnir - Þór
  • Útsending: KKÍ TV1 á Sýn
    Opin dagskrá (til 1. mars)

Fjölnir er í 6. sæti deildarinnar með 11 sigra í 18 leikjum, en Þór í 10. sætinu með þrjá sigra. Fjölnismenn fóru með sigur af hólmi í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í nóvember, 121-115.

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00

Erlingur fær ekki endurhæfingu

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 11:00

Ferðin austur

Jóhann Árelíuz skrifar
22. febrúar 2026 | kl. 06:00