Í minningu sláttumanna og línumerkjara
12. júní 2026 | kl. 13:30
Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu er að hefjast aftur eftir landsleikjahlé. Þór/KA sækir Val heim að Hlíðarenda í dag, en Þór/KA á enn eftir að ná sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni þetta árið. Bæði liðin hafa reyndar átt betri daga en þá rúmu 50 daga sem liðnir eru frá því að mótið hófst.
Að loknum sjö umferðum er Þór/KA í neðsta sæti deildarinnar með tvö stig, en Valur er tveimur sætum ofar með sjö stig.
Valur vann báðar viðureignir liðanna í fyrra, fyrst 3-0 á sínum heimavelli í apríl og 2-1 á Akureyri í ágúst.