Fara í efni
Pistlar

Fimm heimaleikir í fjórum íþróttagreinum

Framboðið á íþróttakappleikjum Akureyrarliða þessa vikuna þjappast á tvo daga, laugardag og sunnudag. Tveir blakleikir, íshokkí, körfubolti og handbolti á heimavöllum og einn körfuboltaleikur á útivelli.

  • Blakáhugafólk fær svokallaðan tvíhöfða í KA-heimilinu á laugardag þegar karla- og kvennalið KA mæta liðum HK úr Kópavogi. Karlaliðin spila fyrri leik dagsins. Bæði KA og HK hafa átt í smá basli með stigasöfnun í upphafi móts, KA með einn sigur og HK engan, en bæði lið hafa spilað fimm leiki. KA er í fimmta sæti Unbroken-deildarinnar með fimm stig, þar sem liðið hefur unnið einn leik og tvívegis tapað 2-3 í hrinum talið. En HK er án stiga á botninum, hefur fimm fyrstu leikjum sínum ýmist 1-3 eða 0-3.
  • Seinni blakleikur laugardagsins verður toppleikur í Unbroken-deild kvenna. Íslandsmeistarar HK koma norður, en Kópavogsliðið er í efsta sæti deildarinnar með 15 stig að loknum fimm leikjum. KA er í 2. sætinu með 12 stig, en hefur leikið einum leik færra en HK. Bæði lið eru taplaus það sem af er keppnistímabilinu og má því búast við hörkuviðureign í KA-heimilinu á laugardag.
  • Kvennalið Þórs í körfubolta hefur verið á ágætu skriði í undanförnum leikjum eftir naumt tap í fyrsta leik tímabilsins. Þrjú efstu lið deildarinnar hafa öll tapað einum leik, en Selfoss er á toppnum með fjóra sigra í fimm leikjum og þar á eftir koma bæði Þórsliðin, úr Þorlákshöfn og frá Akureyri, með þrjá sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum. Keflavík b hefur spilað þrjá leiki og unnið þá alla, er eina taplausa lið deildarinnar. Þór sækir B-lið Njarðvíkur heim á laugardag. Njarðvíkingar eru í 9. sæti deildarinnar, hafa unnið einn af fyrstu þremur leikjum sínum.
  • Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí hefur byrjað tímabilið afar vel og er komið með gott forskot á toppi Toppdeildarinnar. SA hefur tíu stig eftir fjóra leiki, en SR kemur næst með þrjú stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum. Fjölnir hefur aðeins spilað tvo leiki og er með tvö stig í þriðja sætinu. Lið Fjölnis kemur einmitt norður á laugardag og mætir SA í Skautahöllinni á Akureyri. Fjölnir vann SR í síðasta leik sínum, í sögulegum leik sem fór í framlengingu og vítakeppni þar sem samtals þurfti 42 vítaskot til að ráða úrslitunum.
  • Karlalið Þórs í körfubolta tekur á móti liði KFG í sjöttu umferð 1. deildar karla á sunnudag. Þórsliðið hefur aðeins unið einn leik af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og er í 9. sæti. Snæfell og Fjölnir eru í sætunum fyrir neðan, einnig með einn sigur, en Skallagrímur er á botninum með fimm töp. Andstæðingar Þórs í næsta leik, KFG, eru í 4. sæti deildarinnar, en liðið hefur unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni.
  • KA/Þór hefur unnið tvo leiki í röð í Olísdeild kvenna í handknattleik, en liðið tapaði fyrstu fimm leikjum sínum áður en loks komu sigrar á móti Stjörnunni og HK. Það eru einmitt liðin sem eru fyrir neðan KA/Þór í töflunni, bæði með tvö stig. KA/Þór er í 8. sætinu með fjögur stig. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Fram á sunnudag. Fram er í 5. sæti deildarinnar með átta stig úr fyrstu sjö leikjunum.

LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER - blak, körfubolti, íshokkí

  • Blak
    Unbroken-deild karla
    KA-heimilið kl. 13
    KA - HK

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 15:30
    KA - HK

  • Körfubolti
    1. deild kvenna, 
    Íþróttahöllin í Njarðvík kl. 16
    Njarðvík b - Þór

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir

SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER - körfubolti, handbolti

  • Körfubolti
    1. deild karla, 6. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
    Þór - KFG

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 9. umferð
    KA-heimilið kl. 19
    KA/Þór - Fram

Stöður í deildum og leikjadagskrár

Blak

Handbolti

Íshokkí

Körfubolti


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30