Fara í efni
Pistlar

SS Byggir vill tvöfalda byggðina í Hálöndum

Hálönd ofan Akureyrar. SS Byggir hefur staðið fyrir uppbyggingu þar í rúman áratug. Mynd: Þorgeir Baldursson

SS Byggir hefur óskað eftir því við Akureyrarbæ að kaupa land eða fá því úthlutað, til stækkunar orlofshúsabyggðarinnar Hálanda ofan bæjarins. Fyrirtækið hefur byggt 98 hús á eigin landi og óskar eftir „stækkun landsvæðisins, sambærilegri og land Hálanda er í dag, með það að markmiði að nýr áfangi geti rúmað sambærilegt byggingarmagn og núverandi svæði,“ eins og segir í erindi til bæjarins sem tekið var fyrir á síðasta fundi skipulagsráðs.

Meirihluti skipulagsráðs telur „að þar sem um er að ræða svæði sem er hluti af Græna treflinum og búið er að gróðursetja trjáplöntur í svæðið undanfarin ár“ var afgreiðslu frestað þar til umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs um mögulega nýtingu hluta landsins undir frístundabyggð liggur fyrir.

  • Hvað er Græni trefillinn? Græni trefillinn á Akureyri er skipulags- og gróðursetningarverkefni sem er hannað til að umlykja og skýla byggð bæjarins og bjóða upp á fjölþætta útivist á útjaðri hennar

Uppbyggingin til þessa er á landi sem SS Byggir keypti á sínum tíma. Þar er nú aðeins svigrúm fyrir 15 hús til viðbótar að því er segir í erindinu til bæjarins. „Á svæðinu eru jafnframt tveir hótelskálar með samtals 54 herbergjum og möguleiki er á að byggja þriðja skálann. Fyrirtækið hefur auk þess lagt í verulega fjárfestingu vegna gatnagerðar og tengdra framkvæmda.“

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórhallur: Ekki ástæða „til að þvælast fyrir“

„Þessi uppbygging sýnir framkvæmdagetu og vilja til langtímafjárfestingar á svæðinu. Akureyrarbær hefur því tækifæri til að vinna að næsta áfanga með aðila sem þekkir staðhætti, hefur reynslu af framkvæmdum í Hálöndum og hefur þegar lagt þar traustan grunn. Þar sem núverandi svæði nálgast fullbyggingu er tímabært að hefja undirbúning að framhaldinu,“ segir í bréfi SS Byggis.

Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akureyrarlistans lét bóka á fundi skipulagsráðs að hann teldi ekki ástæðu til að tefja þetta mál frekar með því að vísa því til umhverfis- og mannvirkjaráðs heldur beri að ganga til samninga um stækkun Hálanda til norðurs „og fela viðsemjanda að færa til gróður sem plantað hefur verið í Græna trefilinn eða planta á ný norðan við svæðið. Ekki er ástæða til að þvælast fyrir í uppbyggingu sem þessari,“ sem hafi í för með sér töluverða hagkvæmni fyrir Akureyrarbæ varðandi íbúðaframboð og fleira. „Það ber að taka þessu fagnandi og ekki tefja fyrir eða standa í vegi fyrir áframhaldandi uppbyggingu á orlofshúsasvæðinu í Hlíðarfjalli.“

Sindri: „Veruleg verðmæti“

Sindri S. Kristjánsson bæjarfulltrúi Samfylkingar er á öndverðum meiði við Þórhall og lét bóka að í erindi SS Byggis sé þess óskað að „verulegum verðmætum í eigu Akureyrarbæjar sé úthlutað til eins fyrirtækis án auglýsingar.“ Sindri telur að ekki sé stætt á öðru „en að hér fari fram opið útboðs- eða söluferli, sé vilji til þess að úthluta þessum hluta bæjarlandsins til uppbyggingar á annað borð. Heimild bæjarstjórnar til að úthluta lóðum án auglýsinga á að heyra til algerra undantekninga og aðeins að nýtast við sérstakar aðstæður. Ég tel að slíkar kringumstæður séu ekki til staðar í þessu máli.“

Gætið dregið úr skammtímaleigu?

Í erindi SS Byggis segir að einn helsti styrkur Hálanda sé nálægðin við fjölbreytta útivist og afþreyingu allan ársins hring. „Þar má meðal annars nefna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, akstursíþróttasvæði, aðstöðu til hestamennsku, skotsvæði, hjólabrautir og gönguleiðir. Þessi fjölbreytni gefur svæðinu sérstöðu og skapar góðar forsendur fyrir dvöl og afþreyingu árið um kring. Með áframhaldandi uppbyggingu geta fleiri notið þessara kosta svæðisins og um leið styrkist,“ segir í bréfinu til bæjarins.

SS Byggir segir að ávinningurinn fyrir bæjarfélagið nái jafnframt til húsnæðismála og nýtingar innviða. „Aukið framboð gistihúsnæðis í Hálöndum gæti dregið úr skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis innan þéttbýlisins fyrir ferðamenn og skapað þannig betri forsendur fyrir því að íbúðir nálægt skólum, leikskólum og öðrum mikilvægum innviðum nýtist til fastrar búsetu. Slík þróun getur stutt við fjölskyldur, styrkt líf í íbúðarhverfum og stuðlað að betri nýtingu þeirra innviða sem bæjarfélagið hefur þegar fjárfest í.“

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00