Fara í efni
Pistlar

Spennandi toppbarátta í blaki og íshokkí karla

Í dag eru á dagskrá tveir „seinni leikir“ hjá liðum sem taka tveggja leikja helgi, annars vegar heimaleikur karlaliðs KA í blaki þar sem toppbaráttan er spennandi og hins vegar lokaleikur Toppdeildar karla í íshokkí, en þar ráðast úrslitin um deildarmeistaratitilinn og oddaleiksréttinn í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn.

Mikilvæg stig í boði í blakinu

Seinni leikur helgarinnar hjá KA gegn Aftureldingu í blaki karla er á dagskrá í dag. KA hafði nauman sigur í gær, 3-2, og hafði með því sætaskipti við Aftureldingu, en liðin eru þó enn nokkrum stigum á eftir Hamri sem er á toppnum. Hamar er með 47 stig og á tvo leiki eftir, en KA og Afturelding eru bæði með 41 stig og eiga þrjá leiki eftir.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    KA-heimilið kl. 14:30
    KA - Afturelding
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Deildarmeistaratitillinn norður?

Seinni leikur SA og SR í Toppdeild karla í íshokkí og jafnframt lokaleikur deildarinnar er á dagskrá í Skautahöllinni í Laugardal í dag. SR vann fyrri leikinn í framlengingu í gær og er með tveggja stiga forystu á SA. Akureyringum dugar því ekkert annað en sigur í venjulegum leiktíma til að ná deildarmeistaratitlinum og oddaleiksréttinum í úrslitaeinvíginu. 

  • Toppdeild karla í íshokkí
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA
  • Útsending: Icehockeyicelandtv.is
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Þessi sömu lið munu mætast í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsti leikur er á dagskrá þriðjudaginn 10. mars.

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00