Fara í efni
Pistlar

Skíðagöngukeppni Súlur Vertical á sunnudag

Hægt er að velja um þrjár mismunandi vegalengdir í skíðagöngukeppni Súlur Vertical á laugdardaginn.

Næstkomandi sunnudag 1. mars fer fram keppni í skíðagöngu á vegum Súlur Vertical. Þrjár vegalengdir eru í boði og fer keppnin fram á skíðagöngusvæðinu í Hlíðarfjalli. Skráningarfrestur rennur út síðdegis á föstudag.

  • UPPFÆRT: Upphaflega átti keppnin að fara fram á laugardag 28. febrúar en seint á fimmtudagskvöld var ákveðið að fresta keppninni um 24 tíma vegna óhagstæðrar veðurspár fyrir laugardag.

Skíðagöngukeppni Súlur Vertical á rætur sínar að rekja til Hermannsgöngunnar, sem kennd var við íþróttafrömuðinn og skíðaáhugamanninn Hermann Sigtryggsson. Hún rann á síðasta ári undir hatt Súlur Vertical og undirbúningur og framkvæmd keppninnar er í höndum Skíðafélags Akureyrar.

Súlur Vertical hóf göngu sína sem fjallahlaupakeppni árið 2016 en er nú orðið af þríleik sem samanstendur af skíðagöngu og malarhjólreiðum, auk fjallahlaupsins. Lengsti leggur gönguskíðakeppninnar nefnist Bylur (24 km) og er hún að auki ein af sjö mótum í mótaröð Íslandsgöngunnar. Aðrar vegalengdir sem verða í boði á sunnudaginn eru Mjöll (12 km) og Fönn (4 km).

Súpa, drykkir og aðrar veitingar verða í boði fyrir keppendur að göngu lokinni, auk þess sem keppendur í Byl og Mjöll fá gjafakort í Skógarböðin. Hægt er að skrá sig til leiks á netskraning.is fram til kl. 18 á föstudaginn.

Endurnýjuðu samstarfssamning

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Birkir Baldvinsson, formaður Súlur Vertical, undirrituðu samninginn í Kjarnaskógi. Mynd: akureyri.is.

Í vikunni var einnig tilkynnt um endurnýjun samstarfssamnings Akureyrarbæjar við Súlur Vertical og gildir samningurinn út árið 2028. Akureyrarbær mun styðja við framkvæmd viðburðanna í þríleiknum meðal annars með vinnuframlagi, ráðgjöf og öryggis- og kynningarmálum. Árlegt framlag Akureyrarbæjar er metið á um 2 milljónir króna. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Birkir Baldvinsson formaður Súlur Vertical, undirrituðu samninginn  sl. mánudag.

Æskuvinur minn Kunta Kinte

Orri Páll Ormarsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 11:30

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00